Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
Á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember eru árlega veitt Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og þá eru jafnframt veittar sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslensks máls. Í reglum menningar- og viðskiptaráðuneytisins um verðlaunin segir:
- Verðlaunin heita Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar.
- Þau skulu veitt á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember ár hvert. Þau ber að veita einstaklingum er hafa með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar.
Ráðgjafanefnd dags íslenskrar tungu gerir tillögu til menningar- og viðskiptaráðherra um verðlaunahafa og rökstyður val sitt.
Menningar- og viðskiptaráðherra afhendir verðlaunin við hátíðlega athöfn og greinir frá verðleikum verðlaunahafa eða felur það einhverjum úr framkvæmdastjórn. Auk þess er heimilt að veita stofnunum og fyrirtækjum sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu.
Þessi hafa hlotið Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar:
- Vilborg Dagbjartsdóttir skáld og grunnskólakennari, 1996
- Gísli Jónsson menntaskólakennari, 1997
- Þórarinn Eldjárn rithöfundur, 1998
- Matthías Johannessen, skáld og ritstjóri, 1999
- Magnús Þór Jónsson, Megas, 2000
- Ingibjörg Haraldsdóttir, skáld og þýðandi, 2001
- Jón Böðvarsson, 2002
- Jón S. Guðmundsson, 2003
- Silja Aðalsteinsdóttir, 2004
- Guðrún Helgadóttir, 2005
- Njörður P. Njarðvík, 2006
- Sigurbjörn Einarsson, 2007
- Herdís Egilsdóttir, kennari, 2008
- Þorsteinn frá Hamri, rithöfundur og skáld, 2009
- Vigdís Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra Sameinuðu Þjóðanna í tungumálum, fyrrverandi forseti Íslands og leikhússtjóri, 2010
- Kristín Marja Baldursdóttir rithöfundur, 2011
- Hannes Pétursson rithöfundur, 2012
- Jórunn Sigurðardóttir, dagskrárgerðarmaður, 2013
- Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur 2014
- Guðjón Friðriksson sagnfræðingur 2015
- Sigurður Pálsson skáld 2016
- Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur, 2017
- Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, 2018
- Jón G. Friðjónsson prófessor, 2019
- Gerður Kristný, skáld, 2020
- Arnaldur Indriðason, rithöfundur 2021
- Bragi Valdimar Skúlason skáld, grínisti, auglýsingamaður og uppfræðari, 2022
- Áslaug Agnarsdóttir þýðandi, 2023
- Ari Eldjárn, uppistandari, 2024
Sérstakar viðurkenningar fyrir stuðning við íslenska tungu hafa hlotið:
- Orðanefnd byggingarverkfræðingadeildar Verkfræðingafélags Íslands, 1996
- Orðanefnd rafmagnsverkfræðingadeildar Verkfræðingafélags Íslands, 1996
- Hið íslenska bókmenntafélag, 1997
- Blaðamannafélag Íslands, 1998
- Félag íslenskra leikskólakennara, 1998
- Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum, 1999
- Mjólkursamsalan, 1999
- Stóra upplestrarkeppnin, 2000
- Dr. Richard N. Ringler, 2000
- Félag framhaldsskólanema, 2001
- Námsflokkar Reykjavíkur, 2001
- Íslensk plöntuheiti, rafræn útgáfa, 2002
- Með íslenskuna að vopni, hagyrðingakvöld Vopnfirðinga, 2002
- Lesbók Morgunblaðisins, 2003
- Spaugstofan, 2003
- Kvæðamannafélagið Iðunn, 2004
- Strandagaldur, 2004
- Lestrarmenning í Reykjanesbæ, 2005
- Bókaútgáfan Bjartur, 2005
- Orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands, 2006
- Leikhópurinn Hugleikur, 2006
- Samtök kvenna af erlendum uppruna, 2007
- Fréttastofa Útvarps, 2007
- Landnámssetur Íslands í Borgarnesi, 2008
- Útvarpsleikhúsið, 2008
- Þórbergssetur á Hala í Suðursveit, 2009
- Baggalútur, 2009
- Möguleikhúsið 2010
- Hljómsveitin Hjálmar 2010
- Hljómsveitin Stuðmenn, 2011
- Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði, 2012
- Máltæknisetur 2013
- Ljóðaslamm Borgarbókasafns 2013
- Vefnámskeiðið Icelandic Online 2014
- Lestrarhátíð í Bókmenntaborg 2014
- Bubbi Morthens tónlistarmaður 2015
- Ævar vísindamaður (Ævar Þór Benediktsson) 2016
- Gunnar Helgason, rithöfundur, 2017
- Verkefnið Skáld í skólum, 2018
- Reykjavíkurdætur, 2019
- Félag ljóðaunnenda á Austurlandi, 2020
- Vera Illugadóttir, dagskrárgerðarkona, 2021
- Tungumálatöfrar, Ísafirði, 2022
- Menningin gefur samstarfsverkefni Ós Pressunnar, Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur, 2023
- Kveikjum Neistann, Vestmanneyjarbær, 2024
Sjá einnig:
Vefir um Jónas Hallgrímsson
Áhugavert
Menningarmál
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.