Háskólar
Háskólar eru sjálfstæðar menntastofnanir sem sinna kennslu, rannsóknum, varðveislu þekkingar, þekkingarleit og sköpun á sviðum vísinda, fræða, tækniþróunar eða lista. Þeir stuðla að sköpun og miðlun þekkingar og færni til nemenda og samfélagsins alls. Þeir eru hluti af alþjóðlegu mennta- og vísindasamfélagi og styrkja innviði íslensks samfélags og efla samkeppnisstöðu þess.
Háskólar mennta nemendur með kennslu og þátttöku í vísindarannsóknum og búa þá undir að gegna störfum sem krefjast fræðilegra vinnubragða, þekkingar og færni. Háskóli undirbýr nemendur til ábyrgrar þátttöku í lýðræðissamfélagi. Menntun, sem háskólar veita, tekur mið af þörfum samfélagsins hverju sinni og getur verið fræðilegs eðlis og starfsmiðuð. Háskólar ráða skipulagi starfsemi sinnar og ákveða hvernig henni er best fyrir komið.
Háskólar á Íslandi
Háskólar á Íslandi eru sjö: fjórir opinberir háskólar (Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum – Hólaskóli, og Landbúnaðarháskóli Íslands) og þrír einkareknir háskólar (Háskólinn í Reykjavík, Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst). Allir háskólarnir fá ríkisframlag í takt við nemendafjölda og samsetningu námsframboðs, en einungis einkareknir háskólar mega taka skólagjöld af nemendum sínum.
Gæðamat háskóla - Icelandic Agency for Quality Assurance
Ráð Gæðamats háskóla (Icelandic Agency for Quality Assurance) er skipað erlendum sérfræðingum sem bera ábyrgð á ytra eftirliti með gæðum náms, kennslu og rannsókna við íslenska háskóla, sbr. lög nr. 63/2006 og reglur nr. 1165/2024. Rammaáætlun ráðsins byggist á umbótamiðaðri nálgun um eflingu gæða í íslenskum háskólum. Meginmarkmið áætlunarinnar er að knýja fram umbætur í íslenskum háskólum, afla upplýsinga og skapa þekkingu um gæði í háskólastarfi. Íslenskir háskóla bera sjálfir ábyrgð á gæðum starfsemi sinnar en Gæðamat háskóla annast ytra gæðamat á starfseminni. Gæðamat háskóla getur einnig tekið að sér sértækari úttektir á starfi háskólanna þegar þess gerist þörf eða ef kallað er eftir slíkum úttektum frá stjórnvöldum.
Stefnumótun um nám á háskólastigi
Stefnumótun fyrir háskólakerfið í heild er stýrt af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti í samráði við háskóla og aðra hagaðila og byggir bæði á reglubundinni greiningu á stöðu háskólakerfisins hér á landi og virku samráði við stofnanir og aðra hagsmunaaðila. Á árinu 2015 birti ráðuneytið umfangsmikla úttekt á háskólum og vísindum hér á landi þar sem upplýsingar um sögu, þróun og stöðu háskóla- og vísindakerfisins eru teknar saman og hefur hún verið nýtt til að undirbyggja stefnumótun fyrir komandi ár. Í lögum um opinber fjármál og greinargerðum með þeim eru tilgreind markmið ríkisins með háskólum. Háskólar setja sér svo eigin stefnur um starfsemi sína til nokkurra ára í senn. Sumir háskólar hafa einnig sett sér stefnur um einstakar áherslur svo sem jafnréttismál og alþjóðamál.
Viðurkenning á fræðasviðum háskóla
Einungis mega þær stofnanir kalla sig háskóla og bjóða upp á háskólanám sem hlotið hafa viðurkenningu til þess frá ráðherra menntamála. Í viðurkenningu háskóla felst staðfesting á því að starfsemi hans sé í samræmi við lög um háskóla og reglur. Viðurkenningar háskóla eru byggðar á alþjóðlegum viðmiðum um háskólastarfsemi og er ætlað að stuðla að því að íslenskir háskólar uppfylli gæðakröfur og standist alþjóðlegan samanburð. Viðurkenning er bundin við tiltekin fræðasvið og tiltekna undirflokka viðkomandi fræðasviðs. Háskólar geta eingöngu starfað á þeim undirflokkum fræðasviða sem viðurkenning þeirra nær til. Sérstakalega þarf að sækja um viðurkenningu til að bjóða upp á doktorsnám. Sem stendur hafa Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri og Landbúnaðarháskóli Íslands einir viðurkenningu til að bjóða upp á nám til doktorsprófs.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Gagnlegt
Menntamál
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.