Hoppa yfir valmynd

Lyfjaeftirlit í íþróttum

Evrópusamningur Evrópuráðsins gegn misnotkun lyfja í íþróttum tók gildi að því er Ísland varðar þann 1. maí 1991. Með undirritun samningsins fyrir Íslands hönd tók ríkisstjórn Íslands ábyrgð á skipulagi og framkvæmd eftirlits með lyfjamisnotkun íþróttafólks á Íslandi gagnvart Evrópuráðinu og öðrum samningsaðilum. Með samkomulagi milli menntamálaráðuneytisins og Íþróttasambands Íslands í október 1993 fól ríkisstjórnin íþróttahreyfingunni skipulag og framkvæmd lyfjaeftirlitsins, gegn því að ráðuneytið greiddi helming þess kostnaðar sem af því hlaust. Sökum þess að stjórnvöld bera ábyrgð á því að ákvæði Evrópusamningsins séu uppfyllt af Íslands hálfu tóku þau á sig kostnað og ábyrgð í þessu mikilvæga verkefni.

Aðild Íslands að UNESCO samningnum gegn misnotkun lyfja í íþróttum var staðfest í byrjun árs 2006. Alþjóðasamningur UNESCO gegn misnotkun lyfja í íþróttum tók gildi 1. febrúar 2007. Markmið með samningnum er að stuðla að forvörnum og vinna gegn misnotkun lyfja í íþróttum með það leiðarljósi að uppræta hana. Í samningnum er að finna að mestu leyti sambærilegar skuldbindingar og í Evrópusamningi Evrópuráðsins gegn misnotkun lyfja í íþróttum.

Í UNESCO samningnum eru ákvæði sem styðja alþjóðalyfjaeftirlitssamning Alþjóða lyfjaeftirlitsstofnunarinnar (World Anti Doping Agency-WADA) og skuldbinda stjórnvöld aðildarþjóða til að vinna í samræmi við samninginn undir forystu WADA. Samningurinn stuðlar þannig að því að samræma alþjóðlegar lyfjaeftirlitsreglur, stefnu og starf til að skapa heiðarlegar og sanngjarnar keppnisaðstæður fyrir allt íþróttafólk.

WADA fer með heildarstefnumótun og reglugerðarvald yfir lyfjaeftirlitinu á heimsvísu. Að stofnuninni koma annars vegar stjórnvöld aðildarríkja og svo íþrótta- og Ólympíuhreyfingin hins vegar. UNESCO samningurinn um lyfjaeftirlit er grundvöllur þess að stjórnvöld og íþróttahreyfingin geti unnið saman að þessu málefni eins og raun ber vitni með sameiginlegri ábyrgð á málaflokknum. Alþjóðalyfjareglurnar eru endurskoðaður á sex ára fresti. Núgildandi reglur gilda frá 2021-2027. Í stjórn WADA sitja bæði fulltrúar heimsálfa og íþróttasamtaka víða um heim.

Stjórnvöld skulu uppfylla UNESCO samninginn um lyfjaeftirlit með ýmsu móti m.a. með setningu laga og reglugerða, stefnumótun og aðgerðum. Stjórnvöldum ber jafnframt að gera ráðstafanir á þeim sviðum sem tíunduð eru í samningnum.

Með lögum nr. 124/2012 um breytingu á íþróttalögum nr. 64/1998 var ákveðið að mennta- og barnamálaráðherra standi fyrir lyfjaeftirliti í íþróttum í samræmi við þjóðréttarlegar skuldbindingar og honum sé heimilt að fela þar til bærum aðila framkvæmd lyfjaeftirlits með þjónustusamningi til allt að fimm ára í senn. Í samningnum skal meðal annars kveða á um málsmeðferð við lyfjaeftirlit og mat og eftirlit með framkvæmd þess. Frá árinu 2018 hefur Lyfjaeftirlit Íslands séð um framkvæmd lyfjaprófa auk þess að standa fyrir forvarnar og fræðslustarfi. Stofnendur Lyfjaeftirlits Íslands sem er sjálfseignarstofnun eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og mennta- og barnamálaráðuneyti.

Sjá einnig:

Síðast uppfært: 6.1.2023 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta