![Mynd: Menntun fyrir alla](/library/03-Verkefni/Menntamal/Menntun-fyrir-alla/STJ_MENNTUN_banner-1120x420.jpg)
er samstarfsverkefni sem sett var af stað af mennta- og menningarmálaráðuneytinu, samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytinu, velferðarráðuneytinu,
Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambandi Íslands, Skólameistarafélagi Íslands,
Háskóla Íslands fyrir hönd kennaramenntastofnana og Heimili og skóla.
Menntun án aðgreiningar
Allir í skólasamfélaginu sjái í menntun án aðgreiningar sem leið til að gefa öllum nemendum kost á gæðamenntun.
Löggjöf og stefnumótun
Löggjöf og stefnumótun á sviði menntunar án aðgreiningar hafi það markmið að tryggja öllum nemendum jöfn tækifæri.
Framkvæmd stefnu
Stefnunni sem mörkuð hefur verið á sviði menntunar án aðgreiningar sé komið til framkvæmda með árangursríkum hætti á öllum skólastigum.
Stuðningur starfsfólks
Öllum í skólasamfélaginu, á öllum stigum kerfisins, sé gert kleift að ígrunda og framkvæma dagleg störf sín með menntun án aðgreiningar að leiðarljósi.
Stjórnunarhættir og gæðastjórnunaraðferðir
Stjórnunarhættir og gæðastjórnunaraðferðir tryggi að stefnumótun og fram-kvæmd á sviði menntunar án aðgreiningar nái fram að ganga á samhæfðan og árangursríkan hátt.
Fagmenntun og fagleg þróun
Unnið sé að faglegri starfsþróun á árangursríkan hátt á öllum stigum kerfisins.
Stýrihópur um eftirfylgni úttektar
Íslenski starfshópurinn sem veiti hagnýta og tæknilega aðstoð við skipulag og framkvæmd úttektarinnar.