Danskt-íslenskt samstarfsverkefni um stuðning við dönskukennslu á Íslandi
Árið 1996 var komið á samstarfi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um sérstakan stuðning við dönskukennslu og eru samningar þar að lútandi gerðir á fjögurra ára fresti.
Markmið samstarfsverkefnisins eru að
- styðja við dönskukennslu í íslenskum skólum með sérstöku tilliti til munnlegrar færni,
- miðla danskri menningu í íslenskum skólum,
- auka áhuga á dönsku og vitund um mikilvægi málskilnings fyrir Íslendinga.
Af hálfu Dana er um að ræða árlega rammafjárveitingu í fjárlögum sem nemur 3 milljónum danskra króna á árunum 2019 til 2024 og af hálfu Íslendinga er um að ræða árlega rammafjárveitingu sem nemur 6,0 milljónum íslenskra króna.
Í samstarfsnefndinni eiga sæti tveir fulltrúar Íslendinga og þrír fulltrúar Dana.
Fyrirspurnir má senda á nefangið [email protected].
Menntamál
Síðast uppfært: 4.4.2023 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.