Happdrætti og fjársafnanir
Happdrætti er einungis heimilt að starfrækja með leyfi sýslumanns og þarf tilgangur happdrættis að vera að afla fjár til almannaheilla hér á landi. Um peningahappdrætti gilda sérreglur og ekki er heimilt að starfrækja þau nema með sérstakri lagaheimild. Á það jafnframt við um happdrætti á netinu ef þau eru á annað borð peningahappdrætti og um fjárhættuspil. Sum minni háttar happdrætti eru þó undanþegin leyfisskyldu samkvæmt reglugerð, svo sem happdrætti á árshátíðum eða öðrum slíkum samkomum, sem ekki eru opnar almenningi. Er þá miðað við að vinningar séu dregnir út á samkomunni sjálfri og séu lágir að verðgildi og séu ekki peningavinningar.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi annast veitingu leyfa fyrir skyndihappdrættum.
Happdrætti sem starfa samkvæmt lagaheimild
Sex happdrætti starfa samkvæmt sérstakri lagaheimild, sjá tengla hér að neðan ásamt upplýsingum um happdrættisráð þar sem það á við:
- Happdrætti Háskóla Íslands
- Happdrættisráð Happdrættis Háskóla Íslands - Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna
- Happdrættisráð Happdrættis Dvalarheimilis aldraðra sjómanna - Happdrætti Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga
- Happdrættisráð Happdrættis Sambands íslenskra berkla - og brjóstholssjúklinga - Íslenskar getraunir
- Íslensk getspá
- Söfnunarkassar
Einnig er starfandi fastanefnd á sviði happdrættismála. Meginverkefni hennar er að fylgjast með þróun í Evrópurétti á sviði happdrættismála og gera tillögur til ráðherra um framkvæmd vísindarannsókna um spilafíkn, ólögleg fjárhættuspil og réttarbætur á sviði happdrættismála.
Opinberar fjársafnanir
Sérstök lög gilda um opinberar fjársafnanir sem fram fara á vegum stofnana, félaga eða samtaka í löglegum tilgangi. Með opinberri fjársöfnun er átt við starfsemi þar sem almenningur er hvattur til að láta fé af hendi í þágu ákveðins málefnis án þess að endurgjald komi í staðinn.
Opinber fjársöfnun á götum eða í húsum er háð leyfi sýslumannsins á Suðurlandi. Aðrar opinberar fjársafnanir ber að tilkynna sýslumanninum á Suðurlandi áður en þær hefjast, svo sem safnanir í útvarpi, sjónvarpi og á netmiðlum.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Leyfi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi, sýsluskrifstofan á Hvolsvelli, veitir leyfi fyrir minni háttar staðbundnum happdrættum og opinberum fjársöfnunum.
TENGD VERKEFNI
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.