05 Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Skilgreining málefnasviðs
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 05 Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla árið 2024 eru áætluð 29.895,9 m.kr. og aukast um 733,7 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023, eða sem svarar til 2,7%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 2.639,6 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 9,7%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.
Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
05.10 Skattar og innheimta
Skattframkvæmd er á hendi Skattsins og yfirskattanefndar. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
Helstu verkefni 2024 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
Markmið 1: Bæta skattskil með skilvirkara og einfaldara skattkerfi |
||
Skattrannsóknir og skatteftirlit eflt með það að markmiði að sporna við skattundanskotum og uppræta peningaþvætti, m.a. með áherslu á þróun áhættumiðaðs eftirlits samhliða eflingu stafræns umhverfis. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti og Skatturinn |
46 m.kr. |
Stýrihópur verður settur á fót sem mun vinna að heildarendurskoðun á lögum um virðisaukaskatt. Í fyrstu verður lögð til breyting á uppgjörstímabilum VSK þannig að miðað verður við einn mánuð í stað tveggja með hliðsjón af tillögum stýrihópsins. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti og Skatturinn |
Innan ramma |
Verkefnahópur hefur verið settur á fót sem hefur það hlutverk að þróa samræmda aðferðafræði við mat á skattagapi í virðisaukaskatti. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti, Skatturinn og Hagstofa Íslands |
Innan ramma |
Markmið 2: Efla þjónustu og upplýsingagjöf við einstaklinga og fyrirtæki |
||
Aukin áhersla á áframhaldandi þróun stafrænna þjónustulausna með rafrænum skilum og aukinni sjálfvirkni í innheimtu og sjálfsafgreiðslu sem felst m.a. í innleiðingu Stafræns pósthólfs og áframhaldandi þróun snjallmennis. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti, Skatturinn og Fjársýsla ríkisins |
Innan ramma |
Aukið samstarf og stöðlun stafrænna gagna í þágu viðskiptakerfa með það að markmiði að fækka hindrunum innan Norðurlandanna í samræmi við Nordic Smart Government sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að miðla og sækja viðskipta- og bókhaldsgögn á sjálfvirkan og öruggan hátt í því sem næst rauntíma. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti, menningar- og viðskiptaráðuneyti og Skatturinn |
Innan ramma |
Markmið 3: Skattkerfið styðji við stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum og nýsköpun |
||
Innleitt verður nýtt tekjuöflunarkerfi í tveimur áföngum vegna umferðar og orkuskipta í formi veggjalda vegna notkunar bifreiða. Í fyrri áfanga verður um að ræða kílómetragjald vegna notkunar hreinorkubifreiða á vegakerfinu og í þeim síðari vegna bifreiða sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti, innviðaráðuneyti og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti |
Innan ramma |
Jákvæðum fjárfestingahvötum og skilvirkum ívilnunum verður beitt samhliða gjaldtöku á losun gróðurhúsalofttegunda. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti og umhverfis-, orku- og auðlindaráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 9.987,5 m.kr. og lækkar um 326,3 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 733,7 m.kr.
Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 46 m.kr. til að styðja við bætta innheimtu og eftirlit, sbr. markmið 1.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 12 m.kr. vegna tímabundinna verkefna um skráningu raunverulegra eigenda sem falla niður.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 360,3 m.kr.
05.20 Eignaumsýsla ríkisins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með yfirumsjón og fyrirsvar eigna í eigu ríkisins, þ.m.t. í félögum, fasteignum, jörðum og auðlindum, auk þess að vera ábyrgðaraðili opinberra framkvæmda. Starfsemi sem hér fellur undir er að hluta falin Bankasýslu ríkisins og Framkvæmdasýslu – Ríkiseignum (FSRE). Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Helstu verkefni 2024 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|||
Markmið 1: Bætt yfirsýn, aukið gagnsæi og samfélagslega arðbær og ábyrgur rekstur eigna í eigu ríkisins |
|||||
Innleiðing á nýju fyrirkomulagi varðandi umsýslu og stýringu eignarhalds ríkisins í félögum. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
|||
Endurskoðun og mat á félagasafni ríkisins verði sett af stað með tilliti til tilgangs og ábata eignarhalds. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
|||
Reglur um val og hæfniskröfur stjórna verði gefnar út og innleiddar. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
|||
Markmið 2: Markvissari stýring á fjárfestingum ríkisins |
|||||
Semja frumvarp um fjárfestingar ríkisins sem felur í sér heildarendurskoðun á skipan opinberra framkvæmda með það að markmiði að bæta umgjörð og samræma málsmeðferð fjárfestinga á vegum ríkisins. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
|||
Vinna aðferðafræði um þróun fasteignareita í eigu ríkisins með það að markmiði að ná fram markvissari nýtingu á efnahagsreikningi ríkisins. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
|||
Halda áfram undirbúningi á flutningi fasteigna Landspítalans og Sjúkrahússins á Akureyri í miðlæga fasteignaumsýslu. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti í samráði við heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|||
Markmið 3: Aukin sjálfbærni og hagkvæm nýting lands, náttúru og auðlinda í umráðum ríkisins |
|||||
Auglýsa sérleyfi á jörðum ríkisins í nýju regluverki um nýtingu á landi ríkisins í atvinnuskyni. |
FSRE |
Innan ramma |
|||
Móta ramma um ráðstöfun og verðlagningu auðlinda í eigu ríkisins með tilliti til nýtingar orkuauðlinda með hagkvæmum og sjálfbærum hætti. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti og FSRE |
Innan ramma |
|||
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 3.244,6 m.kr. og lækkar um 29,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 138,3 m.kr.
Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helsta breyting á fjárheimildum málaflokksins er eftirtaldin:
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 29,9 m.kr.
05.30 Fjármálaumsýsla, rekstur og mannauðsmál ríkisins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með yfirstjórn ríkisrekstrar og vinnur að gegnsæjum rekstri ríkisins og einföldu skipulagi sem tryggir góða þjónustu. Hlutverk ráðuneytisins í umbótum í ríkisrekstri er víðtækt og nær m.a. til stafvæðingar hins opinbera, hagræðingar í ríkisrekstri og árangursstjórnunar. Undir málaflokkinn falla þær stofnanir sem annast rekstrarlega innviði ríkiskerfisins og veita miðlæga grunnþjónustu til ríkisstofnana í mannauðsmálum, fjármálum og innkaupum, þ.e. Fjársýsla ríkisins, Ríkiskaup og Umbra, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins. Jafnframt falla ákveðin verkefni fjármála- og efnahagsráðuneytis undir þennan málaflokk, s.s. verkefni Stafræns Íslands, kjara- og mannauðssýslu ríkisins og verkefni um nýsköpun hjá hinu opinbera. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Helstu verkefni 2024 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
Markmið 1: Betri og skilvirkari þjónusta ríkisstofnana |
||
Þjónustuviðmið gefin út á grunni stefnu um opinbera þjónustu. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Viðmið sett um notkun gervigreindar og spunagreindar hjá ríkinu. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Kostnaðargreining og forgangsröðun þjónustuferla. |
Stafrænt Ísland |
Innan ramma |
Markmið 2: Efla ríkið sem góðan vinnustað og styrkja hæfni þess til að veita góða opinbera þjónustu |
||
Kortleggja og greina fyrirkomulag launasetningar til að auka gegnsæi og réttmæti launaákvarðana. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Mótun og innleiðing fræðslustefnu, m.a. til að auka stafræna hæfni. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Lykilárangursmælikvarðar (e. KPIs) um skilvirkni, viðskiptavini, rekstur og mannauð stuðla að upplýstari ákvarðanatöku, auknu gagnsæi og skilvirkni í ríkisrekstrinum. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Markmið 3: Öflugri og vistvænni rekstur ríkisstofnana |
||
Koma á samningi um Deiglu – samrekstrarhúsnæði stofnana. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Leiðbeiningar um sameiningu stofnana uppfærðar. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Útgáfa nýrrar aðgerðaáætlunar sjálfbærra innkaupa. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Efling miðlægs stuðnings við stofnanir við að ná árangri og auka skilvirkni. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 6.296,1 m.kr. og hækkar um 204,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 455,7 m.kr.
Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 40 m.kr. af útgjaldasvigrúmi málefnasviðsins til að koma til móts við aukinn miðlægan kostnað við rekstur fjárhagskerfis ríkisins.
- Fjárheimild málaflokksins er hækkuð um 282,8 m.kr. vegna breytinga á áætluðum rekstrartekjum stofnana til samræmis við áætlanir. Breytingarnar hafa ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs þar sem þær hafa samsvarandi áhrif á tekjuhlið. Munar þar mest um hækkun rekstrartekna Umbru, þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins, vegna aukins samreksturs, aukinnar þjónustu við stofnanir í skýjageira ríkisins og innleiðingar á nýrri málaskrá Stjórnarráðsins.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar sem hluti af útfærslu afkomubætandi ráðstafana úr fjármálaáætlun 2024 –2028. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 118 m.kr.
05.40 Stjórnsýsla ríkisfjármála
Undir málaflokkinn fellur aðalskrifstofa fjármála- og efnahagsráðuneytis, ráðstöfunarfé og ýmis önnur verkefni sem ekki verða auðveldlega felld undir önnur málefnasvið eða málaflokka. Fjármunir sem ráðstafað er í verkefni kjara- og mannauðssýslu ríkisins og verkefnastofu um Stafrænt Ísland falla undir málaflokkinn en gerð er grein fyrir markmiðum og áherslum þessara verkefna í málaflokki 5.3. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Helstu verkefni 2024 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|||
Markmið 1: Skýrari tengingar milli stefnu, fjármuna og árangurs |
|||||
Ráðuneyti geri ársfjórðungslega grein fyrir stöðu aðgerða m.t.t. markmiða sem sett hafa verið fram í fjármálaáætlun auk annarra áhersluverkefna sem tengjast stefnu ríkisaðila. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
|||
Þróun aðferða og leiðbeininga sem miða að því að jafnréttismat fjárlagatillagna taki til fleiri breyta en kyns. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
|||
Markmið 2: Bætt upplýsingagjöf um fjármál og rekstur ríkisins |
|||||
Framsetning ársfjórðungsuppgjöra og ríkisreiknings verði gerð notendavænni og samræmist áherslum Alþingis og stjórnvalda. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti og Fjársýsla ríkisins |
Innan ramma |
|||
Bætt áætlanagerð og framsetning á opinberri fjárfestingu. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
|||
Birting fjármálaáætlunar og fjárlagafrumvarps á gagnvirku vefsvæði. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
|||
Markmið 3: Bætt áætlanagerð og eftirfylgni með fjármunum ríkisins |
|||||
Undirstöður ákvarðanatöku í opinberum fjármálum styrktar með kerfisbundinni greiningu á breytingum sem hafa orðið á hagrænni módel- og spágerð í samanburðarríkjum. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
|||
Áætlanagerð ríkisaðila til eins og þriggja ára styrkt með tengingu við AKRA-áætlunarkerfi. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti og Fjársýsla ríkisins |
Innan ramma |
|||
Áhrif á sjálfbærni og loftslag greind og höfð til grundvallar við ákvarðanatöku um breytingar á útgjöldum og tekjum. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
|||
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 10.367,7 m.kr. og hækkar um 885,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 578,2 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar tímabundið um 1 ma.kr. vegna aukinna framlaga til endurnýjunar á upplýsingakerfum ríkisins til samræmis við markmið og áherslur í málaflokki 5.3. Um er að ræða fjármuni sem dreifast munu á önnur málefnasvið.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 165 m.kr. vegna verkefnastofu um samgöngugjöld sem er liður í verkefni í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um nýtt fyrirkomulag fyrir almenna skattlagningu á samgöngur og framtíðartekjuöflunarkefi vegna umferðar og orkuskipta. Tengist markmiði 3 í málaflokki 5.1.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 30 m.kr. vegna aukinnar notkunar á sameiginlegum stafrænum innviðum vegna rafrænnar innskráningar.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 100 m.kr. Um er að ræða 10% lækkun á 1 ma.kr. framlagi sem veitt var tímabundið í fjárlögum ársins 2021 til að greiða fyrir frekari stafvæðingu opinberrar þjónustu. Framlagið var gert varanlegt í gildandi fjármálaáætlun en lækkar um 100 m.kr. sem hluti af útfærslu á afkomubætandi ráðstöfunum.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 30 m.kr. af útgjaldasvigrúmi málefnasviðsins til að greiða fyrir innleiðingu á EES-gerðum á sviði fjármálamarkaða og vegna hækkunar á húsnæðiskostnaði vegna innleiðingar á markaðsleigu.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 339,9 m.kr.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.