33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar
Skilgreining málefnasviðs
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2023–2025. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
Heildaryfirlit útgjalda og breytingar eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar árið 2025 eru áætluð 177.272,8 m.kr. og lækka um 1.922,6 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2024, eða sem svarar til 1,1%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2023 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

33.10 Fjármagnskostnaður
Starfsemi málaflokksins er í höndum fjármála- og efnahagsráðherra. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
Markmið 1: Viðhalda sjálfbærni skulda ríkissjóðs |
||
Hagstæð fjármögnun ríkissjóðs með jöfnu afborgunarferli og lágmörkun áhættu. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Uppbygging áhættustýringar fyrir ríkissjóð. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Markmið 2: Lágmörkun fjármagnskostnaðar að teknu tilliti til áhættu |
||
Endurfjármögnun útistandandi skulda þegar tækifæri gefast á betri vaxtakjörum. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 98.095,6 m.kr. og lækkar um 1.011,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum.
Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er hækkuð um 7.764,7 m.kr. vegna innlendra lána án verðbóta.
- Verðbætur á höfuðstól verðtryggðra lána ríkissjóðs lækka um 9.414,8 m.kr.
- Vextir af erlendum lánum hækka um 638,5 m.kr.
33.20 Ríkisábyrgðir
Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Helstu verkefni 2024 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
Markmið 1: Draga úr ríkisábyrgðum |
||
Endurlána ríkisfyrirtækjum og sjóðum í stað þess að heimila lántökur með ríkisábyrgð. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 110 m.kr. og er óbreytt frá gildandi fjárlögum.
33.30 Lífeyrisskuldbindingar
Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Helstu verkefni 2024 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
Markmið 1: Minnka ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar |
||
Ríkissjóður greiði 10,4 ma.kr. inn á lífeyrisskuldbindingar sínar. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 79.067,2 m.kr. og lækkar um 911 m.kr. frá gildandi fjárlögum. Hrein lífeyrisskuldbinding ríkissjóðs hækkaði um 58.359 m.kr. á árinu 2023 og stóð í 928.612 m.kr. í árslok 2023. Hækkunina má helst rekja til launahækkana opinberra starfsmanna en vísitala lífeyrisskuldbindinga fyrir opinbera starfsmenn hækkaði um 10% á árinu 2023. Gert er ráð fyrir að heildarlífeyrisskuldbinding ríkissjóðs vegna B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins nái hámarki um þessar mundir en fari svo lækkandi sem leiðir til lækkandi gjaldfærslu að jafnaði á næstu árum.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.