Lögræði
Lögræði er tvenns konar, sjálfræði og fjárræði. Sjálfræði felur í sér réttinn til að ráða sjálfur persónulegum högum sínum, öðrum en fjármálum. Fjárræði felur í sér réttinn til að ráða sjálfur fjármálum sínum. Menn verða lögráða, þ.e. bæði sjálfráða og fjárráða, við 18 ára aldur.
Dómsmálaráðuneytið hefur umsjón með málefnum er varða lögræði, þ. á m. stefnumótun og umsjón með regluverki. Sýslumenn eru hins vegar yfirlögráðendur hver í sínu umdæmi og hafa eftirlit með lögráðamönnum, ráðsmönnum og fjárhaldi lögráðamanna þeirra sem eru of ungir til að vera fjárráða, sjá nánar um lögræði á vef sýslumanna. Ákvörðun yfirlögráðanda samkvæmt lögræðislögum má skjóta til dómsmálaráðherra innan 30 daga frá birtingu hennar.
Lögræðissvipting
Standi brýn þörf til, enda hafi önnur og vægari úrræði í formi aðstoðar verið fullreynd, er heimilt með úrskurði dómara að svipta mann tímabundið lögræði. Sjá nánari upplýsingar um lögræði, fjárræði og sjálfræði á vef sýslumanna. Þjóðskrá Íslands heldur skrár um lögræðissvipta menn, skipaða lögráðamenn og ráðsmenn, og gefur út vottorð um það. Sjá nánar á vef Þjóðskrár.
Nauðungarvistun
Nauðungarvistun heyrir til undantekninga, enda mjög alvarlegt inngrip í frelsi einstaklings og algert neyðarúrræði. Markmið nauðungarvistunar er að tryggja að hægt sé að koma við nauðsynlegri læknishjálp samhliða því að gæta að réttaröryggi og mannréttindum hins nauðungarvistaða. Einungis félagsþjónustur sveitarfélaga geta lagt fram beiðni um nauðungarvistun, sem sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu tekur síðan ákvörðun um. Komi til framlengingar nauðungarvistunar er slík krafa borin undir dómstóla, sjá nánar um nauðungarvistun á vef sýslumanna.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Verkefni sýslumanna
Sýslumaður fer með eftirfarandi verkefni varðandi lögráðamál:
Staðfesting á lögræði
Hjá Þjóðskrá Íslands má óska eftir staðfestingu á lögræði einstaklings. Sjá nánar um útgáfu vottorða á neðangreindum hlekk á vef Þjóðskrár:
Persónuréttur
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.