Kort til upplýsinga
Upplýsingar um starfsemi óbyggðanefndar má finna á vef nefndarinnar sem og alla úrskurði hennar.
Á kortasjá eru sýndar allar þjóðlendur sem búið er að úrskurða um á landinu. Þær línur sem settar eru fram á kortasjánni fylgja úrskurðum óbyggðanefndar og eru einungis til hliðsjónar úrskurðarorðum. Úrskurðarorðin og dómsorðin þar sem við á, eru ávallt rétthærri en framsettar línur á kortasjánni. Afmörkun á þjóðlendum getur breyst í kjölfar dóma dómstóla. Gerður er fyrirvari um þær breytingar í þessum gögnum. Hægt er að hlaða niður kortagögnum (LUK) á þessari kortasjá. Gögnin eru uppfærð reglulega.
Að neðan má finna kort sem sýnir staðsetningu skála, náma og fjarskiptamastra innan þjóðlendna annars vegar og hins vegar kort sem sýnir vatns- og jarðhitanotkun innan þjóðlendna.
Tekið skal fram að bæði kortin eru enn í vinnslu og fyrirhugað er að vinna frekar að þeim auk þess sem kortin eru ekki tæmandi og frekari upplýsingar geta bæst við síðar. Kortin sjálf og textinn fyrir neðan þau eru tenglar í PDF-skjöl sem sýna stærri útgáfu og henta til útprentunar.
Yfirlitskort yfir skála, námur og fjarskiptamöstur innan þjóðlendna
Háspennulínur og -strengir Landsnets innan þjóðlendna
Aflstöðvar, stíflur og lón Landsvirkjunar innan þjóðlendna
Frágangur á námum Vegagerðarinnar innan þjóðlendna
Staða náma Vegagerðarinnar innan þjóðlendna
Þjóðlendur
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.