Hoppa yfir valmynd

Lykiltölur

Í skýrslu þessari er greint frá og birtar upplýsingar um ríkisfyrirtæki sem eru flokkuð skv. hagskýrslustaðli og fjárlögum í A3-, B- og C-hluta ríkissjóðs. Í greiningum og framsetningu lykilsamtalna í ársskýrslu þessari er Seðlabanki Íslands undanskilinn, þar sem áhrif gengisbreytinga á gjaldeyriseignir hans hafa veruleg áhrif á afkomu og eigið fé og þar af leiðandi á afkomu og efnahag ríkissjóðs, og myndi því gera samanburð á þróun helstu lykilhlutfalla í rekstri ríkisfyrirtækja milli ára ómarkvissan. Árið 2023 námu heildareignir ríkisfyrirtækja um 4.646 ma.kr. og eigið fé samtals um 1.113 ma.kr. Eignarhlutur ríkissjóðs í félögum nam um 963 ma.kr. og voru heildarstöðugildi í öllum ríkisfyrirtækjum á árinu 5.443.

Lykiltölur 2023.

Fyrirtækjum í ríkiseigu er hér skipt í sex flokka: fjármálafyrirtæki sem eru stærsti hluti eignasafnsins; orkufyrirtæki sem eru næststærst á þeim mælikvarða; innviðafyrirtækin sem eru næstumfangsmest hvað stöðugildi varðar; þjónustufyrirtæki sem einnig eru umfangsmikil á þeim mælikvarða, auk flokka sem innihalda eignaumsýslu og önnur fyrirtæki eru með umfangsminni starfsemi og rekstur.

Landsbankinn hf. er stærsta fyrirtæki ríkisins hvað eignir varðar (1.960 ma.kr.), en fjölmennasti vinnustaðurinn var Isavia með 1.348 stöðugildi sem er um 25% af heildarstöðugildum ríkisfyrirtækja.

Fyrirtæki í orkugeiranum mynda stærsta hluta eigin fjár fyrirtækja í eigu ríkisins eða tæplega 47% (455 ma.kr.) en Landsvirkjun er þar langstærst með 322 ma.kr. eigið fé.

Fjöldi stöðugilda eftir flokkum 2023 

Yfir 5.400 ársstörf eru hjá ríkisfyrirtækjum.  Samanlagt eru 45% starfsfólks fyrirtækjanna konur og hefur konum fjölgað sem lykilstjórnendum um 6% og eru konur nú 42% af heildar lykilstjórnendum. 31% forstjóra fyrirtækjanna eru konur og hefur það hlutfall lækkað frá fyrra ári.

Stöðugildi eftir kyni 2023

Síðan 2019 hefur ráðuneytið birt upplýsingar um stjórnir í ríkisfyrirtækjum á vef stjórnarráðsins. Þar er greint frá þróun kynjahlutfalls innan stjórna félagana ásamt samandregnu vegnu meðaltals kynjahlutfalli stjórnanna og stjórnarformanna eftir árum, aftur til 2016, sjá nánar í kaflanum Stjórnir og stjórnarlaun

 Hagnaður og arðsemi 2023 

Í yfirlýsingu fjármálaeftirlitsnefndar í apríl 2020 um áherslur í fjármálaeftirliti á tímum kórónuveirufaraldurs voru fjármálafyrirtæki hvött til að greiða ekki arð á árinu 2020, í samræmi við tilmæli Evrópska bankaeftirlitsins (EBA).  Þessar aðgerðir draga því verulega úr meðaltals arðgreiðslum til ríkissjóðs á síðastliðnum fimm árum.  Á árinu 2023 greiddu bankarnir 13,6 ma.kr. í arðgreiðslur til ríkisins en orkufyrirtækin greiddu ríkinu 32,9 ma.kr.

Lykiltölur 2023 - tafla

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta