Yfirlit yfir ríkisfyrirtæki
Í þessum kafla er stutt yfirlitskynning á ríkisfyrirtækjunum sem flokkuð eru í A3-, B- og C-hluta ríkissjóðs skv. hagskýrslustöðum. Fyrirtækin eru sett fram í stafrófsröð óháð flokkun þeirra. Í yfirlitinu eru tilgreind markmið ríkisins með eignarhaldinu og hlutverk fyrirtækisins skilgreint. Einnig er gerð grein fyrir stefnu fyrirtækisins og markmiðum þess í umhverfis- og samfélagsmálum. Kynjahlutföllum starfsmanna og lykilstjórnenda eru gerð skil ásamt töflu og myndum með lykiltölum úr rekstri. Frekari upplýsingar um starfsemi fyrirtækjanna er að finna í ársskýrslum fyrirtækjanna á heimasíðum þeirra.
Útreikningar fyrir yfirlitstöflu fyrirtækja
Rekstrarreikningur fjármálafyrirtækja:
- Tekjur samtals = Hreinar vaxtatekjur + þjónustutekjur + aðrar rekstrartekjur + þjónustusamningur
- Þar sem:
- Hreinar vaxtatekjur = Vaxtatekjur – vaxtagjöld +/- hrein virðisbreyting útlána og krafa
- Gjöld eru reiknuð án afskrifta.
Rekstrarreikningur annarra fyrirtækja:
- Tekjur samtals = Þjónustutekjur + aðrar rekstrartekjur + þjónustusamningur
- Gjöld eru reiknuð án afskrifta
- EBITDA = Tekjur samtals – gjöld samtals
Sjóðstreymi annarra fyrirtækja:
- Fjárfestingar = Varanlegir rekstrarfjármunir + óefnislegar eignir
Kennitölur:
- EBITDA hlutfall = EBITDA / Tekjur samtals
- Skuldahlutfall = Heildarskuldir / Heildareignir
- Hagnaðarhlutfall = Hagnaður (-tap) / Tekjur samtals
- Arðsemi eigin fjár = Hagnaður (-tap) / Eigið fé
- Eiginfjárhlutfall = Eigið fé / Heildareignir
- Eiginfjárhlutfall (CAD) er fengið úr ársreikningum fyrirtækjanna
- Veltufjárhlutfall = Veltufjármunir / Skammtímaskuldir
Ársskýrsla ríkisfyrirtækja 2023
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.