Könnun á þjónustu ríkisstofnana
Tilgangur þjónustukönnunar ríkisstofnana er að meta ánægju með opinbera þjónustu og auðvelda stofnunum að skipuleggja þjónustuna þannig að hún reynist sem best. Í meðfylgjandi mælaborði má sjá heildar niðurstöður og niðurstöður stofnana sem náðu að minnsta kosti 100 svörum árið 2024.
Ef skýrslan birtist ekki er einnig hægt að fara beint inn á niðurstöður hennar.
Nánar um framkvæmdina
Framkvæmd þjónustukönnunar ríkisstofnana er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðuneytis.
Svör eru ópersónugreinanleg.
Hver og ein stofnun ber ábyrgð á sendingu könnunarinnar. Notendur geta fengið könnun eftir mismunandi þjónustuleiðum og fer það eftir snertingu við stofnun með hvaða hætti könnun berst. Þetta getur t.d. verið með því að haft er samband í gegnum netföng viðskiptavina. Kjósi einstaklingar ekki að fá könnun senda í tölvupósti frá stofnun má beina því til stofnana að fjarlægja viðkomandi af netfangalista.
Grunnspurningar eru eftirtaldar; spurt er um heildaránægju, viðmót, hraða og áreiðanleika. Einstaka stofnanir geta bætt við spurningum eftir þörfum.
Könnunin er framkvæmd á íslensku, ensku, pólsku og íslensku táknmáli.
Framkvæmdin fer í gegnum Prósent rannsóknir til maí 2025.
Almennar spurningar um könnunina má senda á [email protected].
Eldri kannanir
Framkvæmdin 2024:
Alls tóku 124 stofnanir þátt í þjónustukönnun ríkisins 2024 og voru svör um 23.000 talsins.
Könnunin var framkvæmd á íslensku, ensku, pólsku og íslensku táknmáli.
Framkvæmdin 2024 fór í gegnum Prósent rannsóknir bæði sem rauntímamæling (75 stofnanir) og í gegnum panel (49 stofnanir).
Framkvæmdin 2023:
Framkvæmdin fór fram í gegnum Maskínu í mars, apríl og maí 2023. Könnunin var send í gegnum þjóðarpanel Maskínu ásamt því að netfangakönnun var send út fyrir hluta stofnana sem erfitt er að mæla í gegnum þjóðarpanel. Fjöldi þátttakaenda var 4904 einstaklingar af öllu landinu 18 ára og eldri. Alls var spurt um 134 stofnanir. Ekki er lengur spurt um ánægju með stafræna þjónustu sérstaklega þar sem mikið af þjónustu er nú þegar veitt stafrænt og ekki talið nauðsynlegt að skilja þar á milli.
Framkvæmd 2022 fór fram í gegnum spurningavagn Gallups á tímabilinu 7. janúar til 29. mars 2022. Fjöldi þátttakenda var 10.977 einstaklingar af öllu landinu, 18 ára og eldri, sem svara könnunum á netinu. Alls var spurt um 45 stofnanir. Könnun meðal stjórnenda var lögð fyrir á netinu vegna 8 stofnana og í úrtaki voru 408 stjórnendur hjá ríkinu.
Framkvæmd 2020 fór fram í gegnum spurningavagn Gallups á tímabilinu 20 desember 2019-14. febrúar 2021. Fjöldi þátttakenda var 5.808 manns. Alls var spurt um 33 stofnanir. Könnun meðal stjórnenda hjá ríkinu var lögð fyrir á netinu og í úrtaki voru 172 stjórnendur hjá ríkinu. Könnun meðal fyrirtækja var lögð fyrir á netinu og í úrtaki voru 1.066 aðildarfyrirtæki að Samtökum atvinnulífsins.
Rekstur og eignir ríkisins
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.