Árangur í ríkisrekstri
Til þess að ríkisfjármálin séu sjálfbær þarf að fylgjast með árangri í starfsemi og hafa getu til að forgangsraða eftir þörfum. Í takti við árangursmiðaða fjárlagagerð verður birt yfirlit yfir árangur ríkisaðila eftir fjórum lykilbreytum í starfsemi; skilvirkni, ánægju viðskiptavina, starfsánægju og rekstri. Með þessu móti verður hægt að fylgjast með árangri við veitingu fjármuna niður á ríkisaðila og veita betri innsýn inn í opinbera starfsemi.Á þessari vefsíðu verða innan skamms birtar árangursupplýsingar um alla ríkisaðila í A-hluta.
Í stað þess að leggja áherslu á það hversu miklum fjármunum hverri stofnun er úthlutað er skoðað hverju stofnunin skilar til samfélagsins. Þetta er gert með því að nýta mælanlegar upplýsingar í auknum mæli við gerð fjármálaáætlunar, fjárlagagerðar og við framkvæmd fjárlaga til að styðja við upplýsta ákvarðanatöku, auka gagnsæi og skilvirkni í ríkisrekstrinum. Þetta þýðir að þegar ákvarðanir eru teknar um fjárveitingar liggi fyrir hvaða árangri skuli náð á tilteknu tímabili og hverju fyrri fjárveitingar hafa skilað.
Myndin um árangursmiðaða stjórnun er tvískipt. Efri hlutinn lýsir tengingu áætlanagerðar á grunni stefnu en neðri hlutinn nýtingu fjármuna í framkvæmd hjá ríkisaðilum. Þar á milli á sér stað samtal um þjónustu og árangur sem er kjarninn í árangursmiðaðri stjórnun hjá ríkinu.
Innsýn inn í lykilmælikvarða
Mannauðsmælieining samsett úr lykilþáttum:
• Heildaránægja starfsfólks
• Helgun, samsvörun við tilgang og gildi, stolt, sveigjanleiki, meðmæli
• Traust, vinnustaður, stjórnendur
• Vöxtur, fræðsla, þróun, nýsköpun
• Líðan, veikindi (skammtíma og langtíma), yfirvinnuhlutfall, starfsmannavelta
Rekstrarmælieining samsett úr lykilþáttum:
• Útgjaldaliðir innan heimilda
Hlutfall liða, o.fl.
• Launakostnaður í heild, á stöðugildi, á vinnustund, fjöldi stöðugilda, o.s.frv.
• Annar rekstrarkostnaður
Þróun liða m.v. fyrra tímabil samanburður, o.fl.
Viðskiptavinir-Ánægjumælieining samsett úr lykilþáttum:
• Heildaránægja með þjónustu
• Áreiðanleiki
• Viðmót
• Hraði þjónustu
Skilvirknimælieining samsett úr lykilþáttum:
• Hlutfall lykilverkefna lokið á tíma
• Framgangur mælikvarða.
Eldra efni um árangursstjórnun:
- Árangursstjórnun í ríkisrekstri: Handbók
- Staða árangursstjórnunar í opinberum rekstri. Niðurstöður úttektar (Fjármálaráðuneytið, 2011)
- Kennitölur um umsvif og árangur. Stefnumiðað árangursmat í ríkisrekstri (Ríkisendurskoðun, 2003)
- Náðist árangur? Úttekt á árangursstjórnun í ríkisrekstri (Ríkisendurskoðun, 2003)
Skipulag og stjórnun ríkisstofnana
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.