Stefán Gíslason - Umsögn um fyrstu áfangaskýrslu stjórnarskrárnefndar
Gott kvöld,
Skipun stjórnarskrárnefndar og starf hennar allt gengur þvert á vilja þjóðarinnar sem fram kom með skýrum hætti í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 20. október, 2012. Þá samþykktu 67 % þeirra sem afstöðu tóku að tillaga að nýrri stjórnarskrá, sem Stjórnlagaráð lagði fram, skuli lögð til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá.Undirritaður skorar á nefndina að lúta vilja þjóðarinnar í þessum efnum, með því að leggja til við Alþingi að það samþykki frumvarp til nýrrar stjórnarskrár sem íslenskir kjósendur hafa efnislega þegar samþykkt og lagt var fram á Alþingi vorið 2013. Þannig og aðeins þannig getur nefndin stuðlað að lýðræðislegri niðurstöðu stjórnarskrármálsins.
Með bestu kveðjum,
Stefán Gíslason,
Borgarnesi