Kjartan Jónsson - Umsögn um fyrstu áfangaskýrslu stjórnarskrárnefndar
Til stjórnarskrárnefndar Alþingis:
Undirritaður vill benda nefndinni á að mál þau sem fjallað er um í skýrslunni sem Stjórnarskrárnefnd 2013 lagði fram í júní á þessu ári hefur nú þegar fengið málefnalega og ítarlega meðferð hjá íslensku þjóðinni. Með skipan Stjórnarskrárnefndarinnar 2013 hunsuðu stjórnvöld vilja þjóðarinnar sem fram kom í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 20. október, 2012. Þá samþykktu 67 % þeirra sem afstöðu tóku að tillaga að nýrri stjórnarskrá, sem Stjórnlagaráð lagði fram, skuli lögð til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá.
Ég krefst þess að nefndin ljúki starfi sínu tafarlaust með því að gera tillögu til Alþingis um að það samþykki frumvarp til nýrrar stjórnarskrár sem íslenskir kjósendur hafa efnislega þegar samþykkt og lagt var fram á Alþingi vorið 2013.
Kjartan Jónsson