40. fundur stjórnarskrárnefndar
Dagskrá
- Fundargerð síðasta fundar
- Vinna við fyrirliggjandi textadrög
- Önnur mál
Fundargerð
40. fundur – haldinn föstudaginn 20. nóvember 2015, kl. 16.00, í Safnahúsinu, Reykjavík.
Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Einar Hugi Bjarnason, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Róbert Marshall, sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir.
Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.
1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð 39. fundar, sem haldinn var þriðjudaginn 13. október 2015, var samþykkt án athugasemda.
2. Vinna við fyrirliggjandi textadrög
Rætt um stöðu vinnunnar og framhald.
3. Önnur mál
Ekkert var rætt undir þessum lið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.00.
SG ritaði fundargerð.