49. fundur stjórnarskrárnefndar
Dagskrá
- Fundargerð síðasta fundar
- Umsagnir og athugasemdir um frumvarpsdrög nefndarinnar
- Önnur mál
Fundargerð
49. fundur – haldinn fimmtudaginn 10. mars 2016, kl. 16.00, í fundarsal forsætisráðuneytis við Hverfisgötu.
Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Einar Hugi Bjarnason, Jón Kristjánsson, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir. Róbert Marshall sótti fundinn að beiðni Bjartrar framtíðar. Katrín Jakobsdóttir hafði boðað forföll.
Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.
Formaður gerði grein fyrir þeim málþingum um frumvarpsdrög nefndarinnar sem fulltrúar nefndarinnar hafa tekið þátt í að undanförnu hjá Háskólanum á Akureyri, Háskóla Íslands (tvö málþing) og Stjórnarskrárfélaginu í samvinnu við stjórnmálasamtökin Dögun. Frekari málþing eru í undirbúningi.
1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð 48. fundar, sem haldinn var föstudaginn 19. febrúar 2016, lögð fram og samþykkt með einni athugasemd.
2. Umsagnir og athugasemdir við frumvarpsdrög nefndarinnar
Eftirtaldar athugasemdir og umsagnir um fyrirliggjandi frumvarpsdrög hafa borist nefndinni og verið birtar á stjornarskra.is:
- Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið - Náttúruauðlindir
- Utanríkisráðuneytið - Þjóðaratkvæðagreiðslur
- Samtök atvinnulífsins - Samtök ferðaþjónustunnar - Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi - Samtök iðnaðarins - Ákvæðin þrjú
- Dögun - Ákvæðin þrjú
- Sigurgeir Sveinsson - Ákvæðin þrjú
- Leo Smári Gunnarsson - Þjóðaratkvæði
- Pétur V. Maack - Ákvæðin þrjú
- Björn Björnsson - Ákvæðin þrjú
- Gunnar Grímsson - Ákvæðin þrjú
- Stefán Agnar Finnsson - Ákvæðin þrjú
- Arnar Guðmundsson - Náttúruauðlindir
- Halldór Zoëga - Ákvæðin þrjú
- Brynja Cortes Andrésdóttir - Ákvæðin þrjú
- Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi - Náttúruauðlindir
- Hringur Hafsteinsson - Ákvæðin þrjú
- Þorvaldur Gylfason - Ákvæðin þrjú
- Baldvin Björgvinsson - Ákvæðin þrjú
- Illugi Jökulsson - Ákvæðin þrjú
- Þór Saari - Ákvæðin þrjú
- Kristín Lena Þorvaldsdóttir - Ákvæðin þrjú
- Stjórnarskrárfélagið - Ákvæðin þrjú
- Landeigendafélag Geysis ehf. - Náttúruauðlindir - Umhverfis- og náttúruvernd
- Margrét Björk Björnsdóttir - Umhverfis- og náttúruvernd
- Náttúruverndarsamtök Íslands - Umhverfis- og náttúruvernd
- Álfrún Sigurðardóttir - Ákvæðin þrjú
- Björn Jón Bragason, Jóhann J. Ólafsson og Skafti Harðarson - Náttúruauðlindir
- Hannes Sigmarsson - Ákvæðin þrjú
- Asgeir Ebeneser Þórðarson - Ákvæðin þrjú
- Sigurður Örn Önnuson - Ákvæðin þrjú
- Halldóra Thoroddsen - Náttúruauðlindir, umhverfis- og náttúruvernd
- Samtök eigenda sjávarjarða - Náttúruauðlindir, umhverfi og náttúra
- Árný Elínborg Ásgeirsdóttir - Ákvæðin þrjú
- Ólafur Guðmundsson - Umhverfi og náttúra
- Magnús Guðmundsson - Ákvæðin þrjú
- Þorvaldur Óttar Guðlaugsson - Ákvæðin þrjú
- Samorka - Náttúruauðlindir, umhverfi og náttúra
- Bjarni M. Jónsson - Umhverfis- og náttúruvernd
- Sigurður Sigurðsson - Ákvæðin þrjú
- Haraldur Guðbjartsson - Ákvæðin þrjú
- Friðrik Ólafsson - Ákvæðin þrjú
- Hildur Rúna Hauksdóttir - Ákvæðin þrjú
- Landssamtök landeigenda á Íslandi - Náttúruauðlindir, umhverfis- og náttúruvernd
- Jón Viðar Gunnarsson - Ákvæðin þrjú
- Stjórn Landeigenda Reykjahlíðar ehf. - Náttúruauðlindir, umhverfis- og náttúruvernd
- Einar Indriðason - Ákvæðin þrjú
- Níels Einarsson - Náttúruauðlindir
- Helgi Tómasson - Ákvæðin þrjú
- Bogi Indriðason - Náttúruauðlindir
- Ómar Þ. Ragnarsson - Náttúruauðlindir, umhverfis- og náttúruvernd
- Þorkell Helgason - Ákvæðin þrjú
- Bjarni Gunnarsson - Kjör forseta Íslands
- Jón Viðar Gunnarsson - Náttúruauðlindir
- Einar Már Gunnarsson - Náttúruauðlindir
- Jón Daði Ólafsson - Ákvæðin þrjú
- Sigurbjörn Guðmundsson - Ákvæðin þrjú
- Gísli Baldvinsson - Ákvæðin þrjú
- Jens Jónsson - Þjóðaratkvæðagreiðslur
- Marías Hafsteinn Guðmundsson - Auðlindaákvæði
- Bjarni Jónsson - Umhverfis- og náttúruvernd
- Bjarni Jónsson - Þjóðaratkvæðagreiðslur
- Bjarni Jónsson - Auðlindaákvæði
Formaður gerði grein fyrir meginþáttum í þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Fyrir liggur að flokka þessi gögn og vinna úr þeim, eftir atvikum með aðstoð sérfræðinga. Ákveðið að halda fund um hvert og eitt ákvæði í þeim tilgangi.
3. Önnur mál
Ekkert var rætt undir þessum lið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:00.
SG ritaði fundargerð.