A.14. Jöfnun orkukostnaðar
Aðgerðin er í vinnslu | |
Tengiliður Erla Sigríður Gestsdóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
[email protected]
Fréttir
27.01.22 Þríþætt aðgerð. a) Starfshópur er að störfum sem hefur til skoðunar hvernig tryggja megi aukna jöfnun. b) Niðurgreiðslur á köldum svæðum og gert er ráð fyrir auknum framlögum 2019-2024. c) Styrkir til einstaklinga til kaupa á varmadælum. Tengist aðgerð C.5. Í fjárlögum 2021, frumvarpi til fjárlaga 2022 og fjármálaáætlun 2021-2025 er kveðið á um 730 m.kr. hækkun á framlagi til jöfnunar á dreifikostnaði raforku frá og með árinu 2021. Tryggir um 90% jöfnun. Unnið að frekari jöfnun.
18.12.20 Í frumvarpi til fjárlaga 2021 og fjármálaáætlun 2021-2025 er kveðið á um 730 m.kr. hækkun á framlagi til jöfnunar á dreifikostnaði raforku á árinu 2021. Er þar annars vegar um að ræða hækkun á jöfnunarframlagi vegna verðbólgu (130 m.kr.) og hins vegar 600 m.kr. framlag úr ríkissjóði.
13.11.20 Greining á regluverki og fyrirkomulagi er varðar flutning og dreifingu raforku.
02.10.20 Aukin framlög til jöfnunar dreifikostnaðar raforku, þrífösunar og úrbóta á varaafli.
29.11.19 Þríþætt aðgerð
a) Jöfnun dreifikostnaðar og er
starfshópur að störfum sem hefur til skoðunar hvernig tryggja megi aukna
jöfnun.
b) Niðurgreiðslur á köldum svæðum og gert er ráð fyrir auknum framlögum
2019-2024.
c) Styrkir til einstaklinga til kaupa á varmadælum, sem tengist aðgerð C.5.
Verkefnið
Verkefnismarkmið: Að stuðla að aukinni jöfnun orkukostnaðar í dreifbýli og þéttbýli, bæði hvað varðar dreifingu á raforku og húshitunarkostnað.
Unnið verði að því að jafna mun á orkukostnaði, t.d. hvað varðar húshitunarkostnað, sem er mun hærri á þeim stöðum sem ekki búa við möguleika á hitaveitu með jarðvarma.
- Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Orkustofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Byggðastofnun.
- Tímabil: Viðvarandi.
- Tillaga að fjármögnun: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.