B.07. Störf án staðsetningar
Aðgerðin er í vinnslu | |
Tengiliður Ingilín Kristmannsdóttir, skrifstofustjóri í innviðaráðuneytinu
[email protected]
Fréttir
27.01.22 Í febrúar 2020 fengu allar ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu sniðmát um greiningu starfa. 78% skiluðu greiningu þar sem fram kom að mögulegt væri að auglýsa um 890 störf án staðsetningar eða 13% stöðugilda. Þá hefur verið gerð könnun meðal forstöðumanna um viðhorf til aðgerðarinnar. Í september 2021 gáfu fjármálaráðuneyti, forsætisráðuneyti og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti út skýrslu um störf án staðsetningar þar sem settar eru fram tillögur. Þá hefur Byggðastofnun safnað upplýsingum um mögulegar starfsstöðvar og gert aðgengilegt á vefsíðu sinni. Árið 2021 var gerður samningur um þróun aðstöðu á Selfossi fyrir störf án staðsetningar og lagt til hans 30 m.kr. á þremur árum. Í nýjum stjórnarsáttmála og í tillögu til þingsályktunar að stefnumótandi byggðaáætlun er aðgerðin tekin lengra þar sem gengið er út frá því að öll störf sem ekki eru staðbundin í eðli sínu verði skilgreind án tiltekinnar staðsetningar þannig að búseta hafi ekki áhrif á val starfsfólks.
07.09.21 Skýrsla gefin út um störf án staðsetningar
Kortlagning á húsnæði fyrir störf án staðsetningar
18.12.20 Framkvæmdastjórn FOR, FJR og SRN er að störfum og útbjó í samvinnu við fulltrúa allra ráðuneyta sniðmát um greiningu starfa sem sent var öllum stofnunum á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2020. 78% stofnanna skiluðu greiningu þar sem fram kemur að mögulegt væri að auglýsa um 890 störf án staðsetningar eða 13% stöðugilda. Byggðastofnun hefur safnað upplýsingum um mögulegar starfsstöðvar og gert aðgengilegt á vefsíðu sinni.
17.02.20 Helgina 15. - 16. febrúar fór fram hakkaþon háskólanema þar sem Byggðastofnun lagði fram áskorun úr stefnumótandi byggðaáætlun, byggða á aðgerð B.7. Störf án staðsetningar. Markmiðið var að komast að því hvernig hægt væri að búa svo um að ákjósanlegt yrði fyrir ungt og menntað fólk að búa og starfa á landsbyggðinni. Horfa átti m.a. til samfélagslegra, tæknilegra og félagslegra þátta við úrlausn áskorunarinnar. Það teymi sem hlaut vinninginn fyrir bestu úrlausnina var liðið ,,Byggðafjarðarvinnsla" en þau bjuggu til þjálfunaráætlun fyrir opinberar stofnanir og ráðuneyti um hvernig eigi að hafa starfsfólk án staðsetningar.
Sex teymi þreyttu áskorun Byggðastofnunar á hakkaþoni háskólanema
Minnisblað Byggðastofnunar um keppnina til verkefnahóps um störf án staðsetningar
24.07.19 Elín Valgerður Margrétardóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Eydís Eyjólfsdóttir frá forsætisráðuneyti og Ingilín Kristmannsdóttir frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti skipa framkvæmdastjórn verkefnisins.
Áætlað að ráðuneyti og stofnanir ríkisins hafi greint störf sem vinna má án tiltekinnar staðsetningar, fyrir lok árs 2019. Byggðastofnun hefur safnað upplýsingum um mögulegar starfsstöðvar.
14.06.19 Verkefnahópur skipaður um störf án staðsetningar
Verkefnið
Verkefnismarkmið: Að 10% allra auglýstra starfa í ráðuneytum og stofnunum þeirra verði án staðsetningar árið 2024 þannig að búseta hafi ekki áhrif við val á starfsfólki í ráðuneytum.
Ráðuneyti og stofnanir skilgreini störf sem geta verið án sérstakrar staðsetningar þannig að búseta hafi ekki áhrif við val á starfsfólki. Þegar slíkt starf er auglýst skal vakin athygli á að um starf án staðsetningar sé að ræða. Verði starfsmaður ráðinn sem býr utan daglegrar vinnusóknar frá viðkomandi ráðuneyti/stofnun leitist vinnuveitandi við að finna viðunandi starfsaðstöðu nærri heimili. Fyrir árslok 2019 skal hvert ráðuneyti hafa skilgreint hvaða störf verður hægt að vinna utan ráðuneytis. Fyrir árslok 2021 skulu 5% auglýstra starfa vera án staðsetningar og í árslok 2024 skulu 10% auglýstra starfa vera án staðsetningar. Árangur af verkefninu verði mældur í fjölda starfa í einstökum ráðuneytum og stofnunum sem eru unnin utan veggja þeirra borið saman við 1. janúar 2018.
- Ábyrgð: Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
- Framkvæmdaraðili: Ráðuneyti og stofnanir.
- Dæmi um samstarfsaðila: Byggðastofnun, sveitarfélög og stofnanir á landsbyggðinni.
- Tímabil: 2018–2024.
- Tillaga að fjármögnun: Fjármála- og efnahagsráðuneyti.