Hoppa yfir valmynd

Aðgerð

A.13. Starfsþróun starfsfólks leik- og grunnskóla

Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

Janúar 2024  Fagháskólanám í leikskólafræðum hófst að nýju í september 2023 í samstarfi HÍ og HA. Námið er unnt að stunda óháð búsetu nemenda og voru 50 skráðir á haustönn. HÍ fékk 10 m.kr. styrk frá MRN í desember 2022 til að þróa og skipuleggja fagháskólanám í leikskólafræðum í samstarfi við HA. Stefnt er að því að námið verði í boði við báða háskólana árin 2023-2025 sem sameiginlegt námsframboð skólanna. Átak er í gangi um að fjölga kennurum og fagfólki af erlendum uppruna í kennslustörfum. Íslenskubrú er starfrækt og vinnustofur og aukin ráðgjöf eru í boði fyrir nemendur sem eru með annað heimamál en íslensku. MRN studdi einnig sérstaklega við Íslenskuþorpið með 1,5 m.kr. viðbótarframlagi.

27. janúar 2023  Samstarfshópur um framhaldsfræðslu hefur störf

12. janúar 2023  Yfir milljarði úthlutað til aukins samstarfs háskóla - Fagmenntuðu leikskólastarfsfólki fjölgað og fjarnám eflt

7. nóvember 2022  Ný tækifæri fyrir fólk með stutta skólagöngu

6. október 2022  Viljayfirlýsing um fagháskólanám í leikskólafræðum undirrituð

Tengiliðir 

Ólafur Grétar Kristjánsson, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu - [email protected] 
Hulda Anna Arnljótsdóttir, félags- og vinnumarkaðsráðuneytið - [email protected]

Aðgerðin

Markmið: Að fagháskólanámi í leikskólafræðum verði komið á fót og það fest í sessi í öllum landshlutum og íslenskukunnátta starfsfólks leikskóla sem ekki hefur íslensku að móðurmáli verði efld.

Stutt lýsing: Aðgerðin verði tvíþætt. Annars vegar að til að koma í veg fyrir kennaraskort og auka nýliðun verði starfsfólki leikskóla sem ekki uppfyllir inntökuskilyrði til há¬skóla¬náms boðið tækifæri til aðfaranáms að háskólanámi í leikskólafræðum sem jafnframt teldist vera fyrstu skref í háskólanámi. Áhersla verði lögð á að sveitarfélögin veiti sínu starfsfólki stuðning við upphaf námsins. Skoðað verði að koma á fót raunfærnimati til að fá inngöngu í nám í leikskólafræði. Hins vegar verði stefnt að því að starfsfólk leik- og grunnskóla sem ekki hefur íslensku að móðurmáli fái tækifæri til að efla íslenskukunnáttu sína svo að það nái færni B samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.Námið verði sniðið að þörfum þess og hægt verði að stunda það jafnhliða starfi, m.a. með fjarnámi og stafrænu námsefni. Árangur aðgerðarinnar verði m.a. mældur í fjölda þeirra sem sækja námið.

  • Ábyrgð: Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
  • Framkvæmdaraðili: Háskólar, sveitarfélög og fræðsluaðilar.
  • Dæmi um samstarfsaðila: Mennta- og barnamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands, Fjölmenningarsetrið og stéttarfélög ófaglærðra starfsmanna leik- og grunnskóla. 
  • Tímabil: 2022–2026.
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Menntastefna, þingsályktun um að efla íslensku sem opinbert mál, þingsályktun um barnvænt Ísland.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 4.
  • Tillaga að fjármögnun: Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Félags- og fjölskyldumál
Menntamál
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta