A.19. Aðgangur að geðheilbrigðisþjónustu
Aðgerðinni er lokið | |
Tengiliður Ingibjörg Sveinsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu
[email protected]
Fréttir
27.01.22 Í febrúar 2019 úthlutaði heilbrigðisráðherra 630 m.kr. til eflingar geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu, m.a. til að fjölga stöðugildum sálfræðinga í heilsugæslu og til uppbyggingar geðheilbrigðisteyma um land allt. Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu sá um framkvæmdina og nýttist framlag SRN við að styðja við uppbyggingu teymanna á landsvísu.
18.12.20 Í febrúar 2019 úthlutaði heilbrigðisráðherra 630 m.kr. til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu, m.a. að fjölga stöðugildum sálfræðinga í heilsugæslu og byggja upp geðheilbrigðisteymi um land allt. Það markmið náðist í árslok 2019. Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu sér um framkvæmdina og nýtist framlag ráðuneytisins við að styðja við uppbyggingu teymanna á landsvísu.
27.05.19 Vel sótt vinnustofa um uppbyggingu árangursríkra geðheilsuteyma
21.02.19 Úthlutun 630 milljóna króna til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu
Verkefnið
Verkefnismarkmið: Að styðja við stefnu og aðgerðaáætlun velferðarráðuneytisins í geðheilbrigðismálum.
Komið verði á laggirnar geðheilsuteymum í þeim landshlutum þar sem þau eru ekki þegar starfandi og áhersla lögð á sálfræðiþjónustu við börn og ungmenni. Sérstaklega verði hugað að því að nemar í framhaldsskólum hafi aðgang að viðeigandi geðheilbrigðisþjónustu. Einnig verði hugað vel að geðheilsu og vellíðan aldraðs fólks, m.a. í ljósi vísbendinga um vaxandi einangrun og einmanaleika meðal þess. Þá verði geðheilbrigðisþjónusta við aðra hópa efld, t.d. fanga, fólk með þroskahömlun og fólk með áfengis- og vímuvanda. Stefnt verði að því að geðheilsuteymi hafi tekið til starfa í öllum landshlutum í lok árs 2019.
- Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og heilbrigðisstofnanir um land allt.
- Dæmi um samstarfsaðila: Heilbrigðisstofnanir, Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélög, Öryrkjabandalag Íslands og notendasamtök.
- Tímabil: 2018–2020.
- Tillaga að fjármagni: 5 millj. kr. úr byggðaáætlun.