C.05. Varmadæluvæðing á köldum svæðum
Aðgerðin er í vinnslu | |
Tengiliður Erla Sigríður Gestsdóttir,umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
[email protected]
Fréttir
27.01.22 Veittur var styrkur til kaupa sjóvarmadælu í Vestmannaeyjum og eru fleiri köld svæði sem eru með fjarvarmaveitur til skoðunar. Styrkir til einstaklinga til kaupa á varmadælum hafa verið hækkaðir og áætlað að þeir verði um 25 m.kr. árið 2021. Orkusjóður hefur veitt sveitarfélögum fjárfestingastyrki til verkefna sem leiða til lægri kostnaðar við óniðurgreitt rafhitað húsnæði og mannvirki. Tengist aðgerð A.14.
18.12.20 Ríkið hefur styrkt sjóvarmadælu í Vestmannaeyjum og eru fleiri köld svæði sem eru með fjarvarmaveitur til skoðunar. Þá er skoðað að auka styrki til einstaklinga til kaupa á varmadælum. Orkusjóður hefur veitt sveitarfélögum fjárfestingastyrki til verkefna sem leiða til lægri kostnaðar við óniðurgreitt rafhitað húsnæði og mannvirki. Árið 2018 námu styrkirnir 20 m.kr. og 2019 eru 25 m.kr. til ráðstöfunar. Tengist aðgerð A.14.
Verkefni
Verkefnismarkmið: Að draga úr raforkunotkun á köldum svæðum og auka orkuöryggi.
Dregið verði úr raforkunotkun kyntra hitaveitna og orkuöryggi aukið með varmadæluvæðingu á köldum svæðum með því að styðja uppsetningu varmadælna. Árangur af verkefninu verði mældur í lægri orkukostnaði á landsvísu og auknu orkuöryggi.
- Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
- Framkvæmdaraðili: Orkusjóður.
- Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög.
- Tímabil: 2019–2023.
- Tillaga að fjármögnun: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.