A.03. Efling rannsókna og vísindastarfsemi
Aðgerðin er í vinnslu | |
Tengiliður Þórarinn V. Sólmundarson, sérfræðingur í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu
[email protected]
Fréttir
27.01.22 Unnið er að gerð frumathugunar og áformaskjala vegna endurnýjunar samninga við þekkingarsetur til allt að 5 ára. Í fjárlagafrumvarpi 2022 er gert ráð fyrir auknu fjármagni til þekkingarsetra. Með breyttri skipan ráðuneyta þar sem háskólar, vísindi og nýsköpun verða saman í nýju ráðuneyti má vænta þess að hlutverk setranna og starfsemi verði endurskoðuð með það að markmiði að efla þau enn frekar.
18.12.20 Lokið er úttekt á starfsemi rannsókna-, fræða-, og þekkingarsetra sem nýtist sem mikilvægur grunnur fyrir gerð stefnumótunar um starfsemi þeirra, sem verður unnin á árinu 2021, í samstarfi við nýstofnuð Samtök þekkingarsetra og fleiri haghafa. Bætt hefur verið í fjármögnun á starfsemi þekkingarsetra.
29.11.19 Unnið að úttekt á starfsemi rannsóknar-, fræða-, og þekkingarsetra sem er mikilvægur grunnur að gerð stefnumótunar um starfsemi þeirra. Vakin hefur verið athygli á tillögunni m.a. með það að markmiði að hvetja til verkefnishugmynda og áhersla í anda hennar.
Verkefnið
Verkefnismarkmið: Að auka rannsóknavirkni, vísindastarfsemi og nýsköpun á landsbyggðinni.
Efla skal grunngerð og afl þekkingar- og rannsóknasetra sem byggjast á svæðisbundinni sérstöðu samfélags, atvinnulífs og/eða náttúru. Stuðlað verði að faglegum tengslum þeirra á milli og við háskóla, rannsóknastofnanir og fyrirtæki. Með enn frekara samstarfi verði mannauður og aðstaða nýtt betur og aðgengi nemenda og fræðimanna að auðlindum menningar og náttúru landsins stóraukið. Árangur af verkefninu verði mældur með fjölda samstarfssamninga, fjölda nemenda í meistara- og doktorsnámi sem nýta starfsaðstöðu og umhverfi setranna og þátttöku í rannsóknaverkefnum.
- Ábyrgð: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.
- Framkvæmdaraðili: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.
- Dæmi um samstarfsaðila: Háskólar, rannsóknastofnanir, þekkingar- og rannsóknasetur, Þjóðminjasafnið og bókasöfn.
- Tímabil: 2018–2024.
- Tillaga að fjármögnun: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.