C.15. List fyrir alla
Aðgerðin er í vinnslu | |
Tengiliður Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, sérfræðingur í menningar- og viðskiptaráðuneytinu
[email protected]
Fréttir
27.01.22 Öllum grunnskólum landsins standa til boða heimsóknir listamanna úr ólíkum listgreinum. Laun listamanna og uppihald er kostað af verkefninu. Síðastliðin ár hafa allir grunnskólar utan Reykjavíkur fengið heimsókn, eða um 150 skólar og 10-15 þúsund börn. Árlega starfa 70-80 listamenn á vegum List fyrir alla sem tekur þátt í margs konar samstarfi við menningarstofnanir á landsvísu til að jafna enn frekar aðgengi barna að menningu og listum, óháð búsetu og efnahag. Listveitan veita.listfyriralla.is er dæmi um það sem og nýr vefur Menning fyrir alla.
18.12.20 Öllum grunnskólum landsins standa listverkefni til boða og eru laun listamanna og uppihald kostuð af verkefninu. Síðastliðin tvö ár hafa allir grunnskólar utan Reykjavíkur fengið heimsókn, eða um 150 skólar og 10-15 þúsund börn. Árlega starfa 70-80 listamenn á vegum List fyrir alla. Til að jafna enn frekar aðgengi barna að menningu og listum, óháð búsetu og efnahag, var opnuð Listveita veita.listfyriralla.is undir vefsíðu verkefnisins listfyriralla.is.
Verkefnið
Verkefnismarkmið: Að öllum árgöngum grunnskóla verði gert kleift að njóta listverkefna Listar fyrir alla.
List fyrir alla er ætlað að velja og miðla listviðburðum um land allt og jafna þannig aðgengismun barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Höfuðáhersla verði lögð á menningu fyrir börn og menningu með börnum. Árangur af verkefninu verði mældur í fjölda skóla sem taka þátt í verkefninu og fjölda árganga skólabarna sem býðst þátttaka.
- Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneyti.
- Framkvæmdaraðili: List fyrir alla.
- Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, menningarfulltrúar og grunnskólar.
- Tímabil: 2018–2024.
- Tillaga að fjármögnun: 32,5 millj. kr. úr byggðaáætlun.