C.10. Áhrif loftslagsbreytinga og sveitarfélög
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Fréttir af aðgerðinni
Janúar 2024 Aðgerðin er fullmótuð, búið að skipa framkvæmdateymi og gera samstarfssamning til tveggja ára. Fimm sveitarfélög voru valin til þátttöku (Akureyrarbær, Reykhólahreppur, Fjallabyggð, Reykjanesbær og Sveitarfélagið Hornafjörður) þar sem mismunandi loftslagsvá er til skoðunar. Verkefnið hefur verið kynnt helstu hag- og samstarfsaðilum (stofnunum, ráðuneytum o.fl.) og myndaður sérfræðingahópur til samráðs. Fjarfundir hafa verið haldnir með fulltrúum allra þátttökusveitarfélaga og vinnustofur haldnar í 3 af 5 þátttökusveitarfélögum þar sem framkvæmd var áhættuskimun í samstarfi við starfmenn sveitarfélagsins, fulltrúum atvinnugreina og annarra hagaðila á svæðinu. Vinnustofur í þeim tveimur þátttökusveitarfélögunum sem eftir eru fara fram í janúar 2024.
16. nóvember 2023 Vel sóttar vinnustofur um áhrif og afleiðingar loftslagsbreytinga á sveitarfélög.
9. október 2023 C.10 Fréttabréf - október 2023.
19. október 2023 Loftslagsþolin sveitarfélög til framtíðar: fyrsta aðlögunaraðgerð íslenskra stjórnvalda.
16. apríl 2023 Innslag um verkefnið í hádegisfréttum RÚV (byrjar á 10.mín).
11. mars 2023 Fimm sveitarfélög taka þátt í verkefni um aðlögun íslenskra sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga.
7. nóvember 2022 Óskað eftir sveitarfélögum til þátttöku við að þróa aðlögunaraðgerðir.
9. september 2022 Samtalið um aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga er hafið.
Tengiliðir
Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu - [email protected] og Magnús Freyr Sigurkarlsson, Byggðastofnun - [email protected]
Markmið: Að heildræn nálgun á aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga verði mótuð.
Stutt lýsing: Stigin verði fyrstu skrefin í mótun heildrænnar nálgunar á aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga í byggðum landsins. Tilviksrannsóknir verði framkvæmdar í litlum hópi ólíkra sveitarfélaga, t.d. hvað varðar fjarlægð frá sjó, þéttbýli, landslag, gróðurlendi og atvinnustarfsemi, með það að markmiði að þróa aðferðafræði sem nýtast muni á seinni stigum sem leiðarvísir fyrir íslensk sveitarfélög til frekari greininga á áhættu, tjónnæmi og aðlögunarþörf, sem og við uppsetningu aðlögunaráætlana. Horft verði til sambærilegra áhættugreininga erlendis frá, sér í lagi þeirra sem sveitarfélög hérlendis hafa tekið þátt í. Niðurstöðurnar verði einnig nýttar í norrænt samstarfsverkefni um aðlögun smærri samfélaga á norðurslóðum.
- Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Veðurstofa Íslands, Skipulagsstofnun og Byggðastofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélög, landshlutasamtök, ráðuneyti, stofnanir, háskólar og norræna ráðherranefndin.
- Tímabil: 2022–2024.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Stefna um aðlögun að loftslagsbreytingum, lands¬skipulagsstefna, aðlögunaráætlun (í vinnslu, mars 2022).
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 13.1–13.3.
- Tillaga að fjármögnun: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.