Hoppa yfir valmynd

Stök aðgerð

C.09. Náttúruvernd til eflingar byggðaþróun

Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

Janúar 2024  Tvíþætt aðgerð. Annars vegar er unnið að heimsóknahönnun fyrir friðlandið Andakíl og hins vegar undirbúningi að náttúrurannsóknastöð við Bakkafjörð. Landbúnaðarháskóli Íslands vinnur verkefnið í Andakíl í samstarfi við Umhverfisstofnun, áætluð verklok eru vorið 2024. Verkefnið á Bakkafirði er unnið af Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra í samstarfi við ráðuneytið, áætluð verklok eru í byrjun árs 2024.

20. desember 2022  Samstarf um starfstöð í náttúrurannsóknum á Bakkafirði.

Tengiliður   

Steinar Kaldal, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu - [email protected]

Aðgerðin

Markmið: Að þáttur náttúruverndar í byggðaþróun verði efldur.

Stutt lýsing: Greint verði hvernig aukin náttúruvernd geti haft jákvæð áhrif á byggða¬þróun og hvaða tækifæri og ávinningur gæti falist í því innan eins eða fleiri sveitarfélaga. Gerð verði grein fyrir hvernig náttúruverndaráform samræmist stefnu hlutaðeigandi sveitarfélags eða sveitarfélaga og hvernig megi best nýta þau tækifæri sem felast í náttúruvernd, svo sem með uppbyggingu innviða og þjónustu.

  • Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. 
  • Framkvæmdaraðili: Sveitarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga og Umhverfisstofnun.
  • Dæmi um samstarfsaðila: Markaðsstofur, Skipulagsstofnun, Byggðastofnun og háskólar.
  • Tímabil: 2022–2026.
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Náttúruverndaráætlun og verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun), landsskipulagsstefna, landsáætlun um uppbyggingu innviða, lands¬áætlun í skógrækt 2021–2031 (í vinnslu, mars 2022) og landgræðsluáætlun 2021–2031 (í vinnslu, mars 2022).
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 6, 11, 13 og 15, einkum undirmarkmið 6.3, 11.3, 11.4, 13.2, 15.1, 15.2, 15.3 og 15.9.
  • Tillaga að fjármögnun: 30 millj. kr. úr byggðaáætlun. 

Fréttir

27.01.22 UAR hefur gert samninga við fimm landshlutasamtök sveitarfélaga um greiningu tækifæra og áhrifa friðlýstra svæða. Verkefnunum er lokið á Austurlandi, Suðurlandi og Norðurlandi eystra. Gerður hefur verið samningur við Fjórðungssamband Vestfirðinga og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi um greiningu tækifæra við Breiðafjörð og leggur UAR 15 m.kr. til viðbótar í það verkefni.

18.12.20 Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gert samninga við þrenn landshlutasamtök sveitarfélaga um greiningu tækifæra og áhrifa friðlýstra svæða. Á Austurlandi og Suðurlandi eru verkefnin komin vel á veg og á Norðurlandi eystra hófst verkefnið árið 2020.

14.05.20 Skoða ávinning af friðlýsingu svæða á Norðurlandi eystra

29.11.19 Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gert samninga við tvö landshlutasamtök sveitarfélaga um greiningu tækifæri og áhrifum friðlýstra svæða. Valin hafa verið svæði til að vinna með í þessum landshlutum. Hagfræði­stofnun HÍ og Rannsókna­miðstöð HA hafa unnið greiningar­vinnu sem nýtist í verkefnum landshlutasamtaka.

17.05.19 Greining tækifæra og ávinnings af friðlýsingu svæða á Suðurlandi

04.04.19 Greining tækifæra og ávinnings af friðlýsingu svæða á Austurlandi

Umhverfi og náttúruvernd
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta