C.03. Grænt og snjallt Ísland
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Fréttir af aðgerðinni
Janúar 2024 Verkefnistjóri hefur verið ráðinn til Sambands íslenskra sveitarfélaga sem mun í samstarfi við sveitarfélög, landshlutasamtök þeirra og aðra hlutaðeigandi vinna að því afla styrkja í græn og snjöll verkefni. Stefnt er að því að starfið verði sjálfbært eftir tvö ár og fjármagnað með styrkjum.
Tengiliður
Kjartan Ingvarsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu - [email protected]
Aðgerðin
Markmið: Að nýttar verði snjallar og grænar lausnir til að efla atvinnulíf og samfélag.
Stutt lýsing: Unnið verði í víðtæku samstarfi að framtíðarsýn fyrir Ísland sem einkennist af sjálfbærni, jöfnum tækifærum og samstarfi um verkefni sem nýta snjallar og grænar lausnir til að efla atvinnulíf og samfélag. Skilgreind verði lykilverkefni og grænar fjárfestingar sem nauðsynlegt er að ráðast í til þess að markmiðið um Grænt og snjallt Ísland (GOS) verði að veruleika. Í tengslum við GOS verði sett á fót samstarfsteymi sem m.a. sam¬hæfir sókn í fjármagn, þ.m.t. í ESB-sjóði.
- Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Samband íslenskra sveitarfélaga í samstarfi við teymi sem stofnað verður.
- Dæmi um samstarfsaðila: Ráðuneyti, sveitarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga, Ís¬lands¬stofa, Byggðastofnun, Verkefnastofa um stafrænt Ísland og háskólar.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Aðgerðaáætlun um eflingu stafrænnar þjónustu, fram¬tíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar, stefna í málefnum sveitarfélaga, orku¬stefna, nýsköpunarstefna og klasastefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 7, 9, 12 og 13, einkum undirmarkmið 7.2, 7.3, 9.5, 12.2, 12.5, 12.8 og 13.2.
- Tillaga að fjármögnun: 5 millj. kr. af byggðaáætlun.