B.10. Nýting menningarminja
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Fréttir af aðgerðinni
Janúar 2024 Árið 2022 hófst vinna við hönnun smáforrits til miðlunar menningar- og búsetulandslagi á Hofstöðum í Mývatnssveit. Niðurstaða greiningarvinnu var að halda ekki áfram með þá vinnu.
Tengiliður
Dagný Arnarsdóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu - [email protected]
Aðgerðin
Markmið: Að menningarminjar til stuðnings byggðaþróun verði nýttar, einkum á svæðum sem standa höllum fæti í byggðarlegu tilliti.
Stutt lýsing: Leitast verði við að fá heildarsýn yfir minjaarfinn til að greina nýtingarmöguleika og þau sóknartækifæri sem í honum felast. Menningarminjar (fornleifar, mannvirki og hús) verði kortlagðar á tilteknum svæðum og þau gögn notuð sem forsenda fyrir hönnun verkefna. Minjastofnun verði byggðarlögum til aðstoðar við leit að fjármagni fyrir þau verkefni sem sett verða í gang í kjölfarið, svo sem með því að benda á viðeigandi sjóði, styðja umsóknir og veita faglega ráðgjöf.
- Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Minjastofnun Íslands.
- Dæmi um samstarfsaðila: Byggðastofnun, Þjóðminjasafn Íslands, landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög, áfangastaðastofur, ferðaþjónustuaðilar og háskólar.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Menningarstefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 11, einkum undirmarkmið 11.4.
- Tillaga að fjármögnun: 12,5 millj. kr af byggðaáætlun