C.15. List fyrir alla
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Fréttir af aðgerðinni
Janúar 2024 Öllum grunnskólum landsins standa til boða heimsóknir listamanna úr ólíkum listgreinum, sem 90% skóla nýta. Laun listamanna og uppihald er kostað af verkefninu. Skólaárið 2022–2023 voru 24 verkefni á ferðinni um landið sem ríflega 13 þúsund nemenda nutu og 81 listamaður kom fram. List fyrir alla tekur þátt í margs konar samstarfi við menningarstofnanir á landsvísu svo og erlendu samstarfi til að jafna enn frekar aðgengi barna að menningu og listum, óháð búsetu og efnahag.
Tengiliður
Elfa Lilja Gísladóttir, menningar- og viðskiptaráðuneytinu - [email protected]
Aðgerðin
Markmið: Að öllum árgöngum grunnskóla verði gert kleift að njóta listverkefna á vegum Listar fyrir alla.
Stutt lýsing: Listviðburðir verði valdir og þeim miðlað um land allt og þannig verði jafn¬aður aðgengismunur barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburð¬um óháð búsetu og efnahag. Höfuðáhersla verði lögð á menningu fyrir börn og menn¬ingu með börnum. Árangur af aðgerðinni verði m.a. mældur með fjölda skóla sem taka þátt í verkefninu og fjölda árganga skólabarna sem býðst þátttaka.
- Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: List fyrir alla.
- Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, menningarfulltrúar og grunnskólar.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Menningarstefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 4.
- Tillaga að fjármögnun: 25 millj. kr. úr byggðaáætlun.