Hoppa yfir valmynd

Stök aðgerð

A.08. Stjórnsýslustöðvar ríkis í héraði

Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

26. febrúar 2024  Stefnumótunar- og greiningarvinna í málefnum sýslumanna.

22. nóvember 2023  Eftirfarandi verkþættir hafa verið í forgangi:

  1. Greining og samvinna við önnur ráðuneyti um ný verkefni fyrir sýslumenn, s.s. innheimtu meðlaga, umsýslu með nefndarstörfum, skráningar vegna útgáfu rafrænna skilríkja og mótun þjónustumiðstöðva í héraði. Helstu samstarfsaðilar eru IRN, FOR og FJR.
  2. Samráð við ríkisaðila á höfuðborgarsvæðinu sem heyra undir DMR um greiningu starfa í  staðbundin eða óstaðbundin störf og að horft verði til aðgerða B.6., B.7.  og A.8. við auglýsingar um laus störf. Starfsstöðvar sýslumanna á landsbyggðinni sérstaklega nefndar sem vænlegur kostur til að hýsa starfsfólk.
  3. Greining og undirbúningur fyrir gerð þjónustusamninga milli sýslumanna og annarra ríkisaðila og eftir atvikum einkaaðila um betri nýtingu innviða sýslumanna (húsnæðis, mannauðs o.fl.) með það að markmiði að bæta þjónustu við almenning og
  4. Gagnaöflun og annar undirbúningur fyrir greiningu á rekstri og stjórnsýsluframkvæmd embættanna. Að auki hefur DMR samið við utanaðkomandi sérfræðinga um aðstoð við verkstjórn vegna yfirflutnings nýrra verkefna og undirbúnings að stefnumótun um málefni sýslumanna.

3. apríl 2023  Frétt á vef DMR: Flutningur verkefna til sýslumanns.

Tengiliður    

Guðmundur Bjarni Ragnarsson, dómsmálaráðuneytinu - [email protected] 

Aðgerðin 

Markmið: Að opinber þjónusta í héraði verði efld, atvinnutækifærum fjölgað og ríkisrekstur bættur.

Stutt lýsing: Starfsemi sýslumannsembætta um land allt og opinber þjónusta í héraði verði efld með betri nýtingu innviða, þ.m.t. stafrænnar tækni, húsnæðis og mannauðs. Árangur af aðgerðinni verði m.a. mældur í fjölda starfa á sýsluskrifstofum og fjölda sérfræðinga þar.

  •  Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið. 
  •  Framkvæmdaraðili: Dómsmálaráðuneytið og sýslumannaráð.
  •  Dæmi um samstarfsaðila: Sýslumenn, Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélögin, verkefnastofa um stafrænt Ísland, önnur ráðuneyti og undirstofnanir. 
  •  Tímabil: 2022–2026.
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Sýslumenn – Framtíðarsýn; umbætur á þjónustu og rekstri, skýrsla dómsmálaráðuneytisins (mars 2021).
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 11, einkum undir¬markmið 11.a og 11.b.
  •  Tillaga að fjármögnun: 50 m. kr. af byggðaáætlun. 

Sveitarstjórnir og byggðamál
Lög og réttur
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta