Tekjur sjóðsins
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga eru tryggðar fastar tekjur með eftirfarandi hætti:
- Framlag úr ríkissjóði sem nemur 2,111% af innheimtum skatttekjum ríkissjóðs. Þar af skal fjárhæð er nemur 0,23% af innheimtum skatttekjum renna til málefna fatlaðs fólks.
- Árlegt framlag úr ríkissjóði sem nemur 0,264% af álagningarstofni útsvars vegna næstliðins tekjuárs.
- Hlutdeild í útsvarstekjum sveitarfélaga sem nema 0,77% af álagningarstofni útsvars hvert ár (tilkomið vegna yfirfærslu grunnskólans).
- Hlutdeild í útsvarstekjum sveitarfélaga sem nema 0,99% af álagningarstofni útsvars hvert ár (tilkomið vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðra).
- Vaxtatekjur.
Sjá einnig
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Stofnanir
Nánar um starfsemi Jöfnunarsjóðs
Síðast uppfært: 22.11.2022
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.