Ferðamenn og náttúra
Náttúra og menningarminjar eru eitt helsta aðdráttarafl ferðaþjónustu hér á landi og hefur erlendum ferðamönnum fjölgað mikið síðastliðinn áratug. Ferðaþjónusta er þannig umfangsmikil atvinnugrein sem nýtir auðlindir íslenskrar náttúru með tilheyrandi álagi á fjöldamörgum stöðum. Þá fer hverskonar útivist Íslendinga vaxandi.
Náttúra og menningarminjar á Íslandi eru gjarnan viðkvæmar fyrir ágangi og álag er á mörgum vinsælustu ferðamannastöðunum. Þörf er á skipulagðri uppbyggingu margskonar innviða ef vernda á þau gæði sem staðirnir búa yfir jafnframt því að auka öryggi ferðamanna sem þá sækja. Má þar nefna innviði eins og göngustíga, öryggisgirðingar, þjónustumiðstöðvar, merkingar, sem og eftirlit og landvörslu.
Til að móta stefnu, samræma og skipuleggja aðgerðir á þessu sviði hefur Alþingi sett lög um gerð landsáætlunar um uppbyggingu innviða til verndar náttúru- og menningarsögulegra minja. Markmið laganna er ná heildrænt utan um þá staði sem þarfnast verndunar vegna aukins ágangs af völdum ferðamennsku og útivistar. Það er gert með aðgerðabundinni stefnu og framkvæmdaáætlun.
Samkvæmt lögunum skal gerð stefnumarkandi landsáætlun til tólf ára sem Alþingi samþykkir í formi þingsályktunar auk þriggja ára verkefnaáætlunar sem er hluti af og innan ramma tólf ára áætlunarinnar. Með áætlun til tólf ára er lögð áhersla á langtímahugsun innviðauppbyggingar, yfirsýn og hagkvæmni í ráðstöfun ríkisfjármuna.
Stefnumarkandi landsáætlun til tólf ára var fyrst samþykkt sem þingsályktun árið 2018. Fyrsta þriggja ára verkefnaáætlunin, sem lýtur að staðbundnum innviðaverkefnum, leit dagsins ljós sama ár og hefur síðan verið endurskoðuð og útgefin á hverju ári.
Sjá einnig:
Lög
Gagnlegir tenglar
FERÐAMENN OG NÁTTÚRA
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.