Hoppa yfir valmynd

Landsáætlun um innviði

Með landsáætlun er mörkuð stefna og áætlun um uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum, leiðum og svæðum. 

Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum,  sem unnin er á grundvelli laga nr. 20/2016, er stefnumarkandi tólf ára aðgerðabundin áætlun sem Alþingi sem þingsályktun í júní 2018. Markmið laganna er að móta og samræma stefnu um uppbyggingu, rekstur og viðhald innviða í þágu náttúruverndar og til verndar menningarsögulegum minjum vegna álags af völdum ferðamennsku og útivistar.

Innan stefnumarkandi landsáætlunar er framkvæmdaáætlun sem gildir til þriggja ára í senn.

Verkefnisstjórn landsáætlunar forgangsraðar verkefnum og gerir tillögu til ráðherra að þriggja ára áætlun. Í henni sitja fulltrúar forsætisráðuneytis, viðskipta- og menningarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, auk umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. 

Sjá einnig:

Síðast uppfært: 17.12.2024
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta