Hoppa yfir valmynd

Umhverfisþing

XIII. Umhverfisþing sem haldið verður þriðjudaginn 5. nóvember. Þingið fer fram í Kaldalóni í Hörpu og stendur frá kl. 13 – 16. Einnig verður hægt að fylgjast með þinginu í beinu streymi.

Umfjöllunarefni þingsins eru loftslagsmál, aðlögun að loftslagsbreytingum og náttúruvernd.

Meðal þeirra sem flytja erindi á þinginu eru:

Mikael Allan MikaelssonDr. Mikael Allan Mikaelsson. Hann hefur starfað sem sérfræðingur á sviði loftslagsstefnumótunar síðastliðin tvö ár hjá Stockholm Environment Institute (SEI) og er einn af helstu höfundum Evrópska loftslagsáhættumatsins sem gefið var út af Umhverfisstofnun Evrópu (European Environment Agency) fyrr á árinu. Mikael hefur unnið markvisst við greiningar á kerfisbundnum áhrifum loftslagsbreytinga (t.d. þvert á landamæri) og stefnumótun á sviði loftslagsaðlögunar til að sporna við þeim, og hefur hann t.a.m. starfað við greiningar og ráðgjöf um afleiðinga loftslagsbreytinga á aðfangakeðjur og viðskiptalíf fyrir Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, UN Global Compact World Economic Forum. Áður en Mikael hóf störf hjá SEI, starfaði hann í tæpan áratug fyrir bresku utanríkis-, orku- og iðnaðarráðuneytin þar sem hann hafði umsjón með tækni, vísinda- og nýsköpunarsamstarfi tengdu evrópskum loftslagsaðgerðum og hlaut hann MBE orðuna og nafnbótina af hendi bresku krúnunnar fyrir störf sín á sviði loftslagsmála.

Elín Björk JónasdóttirElín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur í loftslagsteymi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Íslensk stjórnvöld kynntu í sumar uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Áætlunin samanstendur af 92 loftslagsaðgerðum og 58 loftslagstengdum verkefnum, sem er umfangsmikil aukning frá fyrri aðgerðaáætlun. Elín kom til starfa í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu fyrir rétt rúmu ári, en hafði áður unnið nær allan sinn feril sem veðurfræðingur í ýmsum hlutverkum á Veðurstofu Íslands, þar sem hún lagði meðal annars áherslu á vísindamiðlun og fór einnig um tíma með veðurfregnir á  RÚV.

Hildigunnur H. H. ThorsteinssonHildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands. Veðurstofa Íslands vinnur nú að gerð Loftslagsatlass, sem var ein af forgangsaðgerðum stýrihóps sem umhverfis-, orku og loftslagsráðherra skipaði haustið 2022 til að vinna tillögur fyrir gerð Landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum. Hildigunnur starfaði áður m.a. sem Chief Technical Officer hjá Innargi AS í Kaupmannahöfn, framkvæmdastýra rannsókna- og nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur og sem teymisstjóri á jarðvarmasviði í orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna.

Steinar KaldalSteinar Kaldal, sérfræðingur í náttúruverndarteymi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði eru aðdráttarafl í augum margra ferðamanna. Steinar mun fara yfir jákvæð samfélagsleg áhrif þessara svæða og taka dæmi innanlands og erlendis.

 

 


 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta