Stefnubirtingar erlendis
Frá og með 22. október 2010 færðist milliganga um stefnubirtingar á Norðurlöndum og í fjölda annarra ríkja frá utanríkisráðuneytinu til dómsmálaráðuneytisins. Þessi breyting er gerð í framhaldi af fullgildingu íslenskra stjórnvalda á Haag-samningi um birtingu erlendis á réttarskjölum og utanréttarskjölum í einkamálum og verslunarmálum frá 1965, en samningurinn kveður meðal annars á um bein samskipti miðlægra stjórnvalda í aðildarríkjum hans.
Yfirlit um aðildarríki samningsins má sjá hér.
Utanríkisráðuneytið hefur áfram milligöngu um stefnubirtingar í þeim ríkjum sem ekki eru aðilar að þessum samningi.
Sérstök athygli er vakin á því að þegar óskað er eftir milligöngu dómsmálaráðuneytisins um birtingar þarf nú að útfylla þar til gerð eyðublöð:
Nánari upplýsingar varðandi samninginn má finna á eftirfarandi heimasíðu: https://www.hcch.net/
Verkefni borgaraþjónustu
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.