Hoppa yfir valmynd

Styrkt verkefni

Þróunarlönd kalla eftir auknum fjárfestingum einkageira í atvinnu- og verðmætasköpun, þar sem lausnir og sérþekking fyrirtækja geta með áhrifamiklum hætti stuðlað að framþróun innan þeirra. Þróun á heimsvísu er sú að einkageirinn kemur sífellt sterkar inn og er orðinn jafn stór opinbera geiranum í framlögum til þróunarsamvinnu. Í mörgum tilfellum horfir einkageirinn til þróunarlanda sem hratt vaxandi framtíðarmarkaða.

Öll íslensk fyrirtæki sem eru opinberlega skráð geta sótt um styrk í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífs um þróunarsamvinnu. Verkefni þurfa að vera unnin í samvinnu við fyrirtæki, stofnun eða stjórnvöld í samstarfslöndum Íslands. Sjá lista yfir samstarfslönd.

Fleiri en eitt íslenskt fyrirtæki geta tekið höndum saman eða átt samstarf við félagasamtök, háskóla eða aðra slíka aðila.

Fyrirtæki geta með þróunarsamstarfsverkefnum stutt við framgang heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. 

Í samstarfi við Festu, miðstöð um samfélagslega ábyrgð hefur verið hönnuð verkfærakista fyrir fyrirtæki sem vilja stuðla að heimsmarkmiðunum.

Vel á þriðja tug fyrirtækja hafa fengið styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs. Flest hafa fengið stóran styrk allt að 200.000 evrur en þriðjungur til forkönnunarverkefna sem almennt eru 2 m.kr. Um helmingur þessara verkefna koma til framkvæmda í fátækustu ríkjum heims samkvæmt skilgreiningu Þróunarsamvinnunefndar OECD (Least Developed Countries). Um er að ræða fjölbreytt ráðgjafaverkefni á sviði orku- og jarðhitamála, fiskveiði og fiskveiðistjórnunar, fjármálaþjónustu, heilbrigðisþjónustu, laga- og reglugerðaskrifa, matvælaframleiðslu og skapandi greina.  

Nánar um fyrirtæki og verkefni hér að neðan.

Listi yfir verkefni styrkt af Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu

Fyrirtæki Heiti verkefnis Upphæð (ISK) Land Ár
Hananja 2  Rephaiah verkefnið 2. hluti 29.705.200 Malaví 2024
Íslenski sjávarklasinn Þróun sjávarklasa á Kíribati 26.548.694 Kíribati 2024
Kerecis 2 Íslenskt sáraroð til meðhöndlunar brunasára hjá börnum  24.210.400 Afganistan 2024
Vaxa technologies Næringaraukandi fæðuverkefni í Tansaníu 30.000.000 Tansanía 2024
 As we grow  Valdefling handverkskvenna í Perú 28.660.000  Perú 2023
 Creditinfo Group hf.  Aukið gagnsæi fjárhagsupplýsinga til að fyrirbyggja peningaþvætti 29.060.000   Kenía, Úganda, Fílabeinsströndin, Senegal 2023
 Tern Systems  Flugumsjónarkerfi fyrir minni flugvelli 29.060.000  Eþíópía 2023
 Verkís  Jarðhitaverkefni á Indlandi 8.718.000 Indland  2023
Fisheries Technologies ehf. Carice, innleiðing á TFM upplýsingakerfi 14.000.000 Karíbahafseyjar, Saint Kitts og Nevis 2023
Verkís Geothermal Ukraine  9.156.850 Úkraína   2023
 Mar Advisors Bætt aðgengi sjávarfangs frá Víetnam að mörkuðum í Evrópu 2.000.000   Víetnam 2022
 RetinaRisk Bylting í eftirliti augnskimunar til að forða blindu á Indlandi 10.000.000   Indland 2022
 Reykjavik Geothermal Stofnun jarðhitarannsóknarstofu í Eþíópíu 27.900.000   Eþíópía 2022
 Verkís Bein jarðhitanotkun í Lake Assai, Djíbútí 4.000.000   Djíbútí 2022
 Össur Þróunaraðstoð til handa fórnarlömbum stríðasátaka í Úkraínu 27.900.000   Úkraína 2022
66 Norður og UN Women Atvinnuþróun, valdefling flóttakvenna og hringrásarhagkerfi 26.924.000 Tyrkland/ Flóttamannamiðstöð kvenna 2022
BBA//Fjeldco og Intellecon Fjölnýting jarðvarma í Kenía: Aukið matvælaöryggi 5.415.000   Kenía 2022
Ecoscopy Þróunarfræ - Skalanlegar sólarorkueiningar í ræktarlandi 2.000.000 Úganda 2022
Pólar toghlerar ehf. Hringrásarhagkerfi endurvinnsla plast úrgangs 2.000.000 Senegal 2022
Pólar toghlerar ehf. og Kaldara Group Hringrásarhagkerfi og nútímavæðing fiskveiða í Kenía 6.000.000   Kenía 2022
Áveitan ehf. Sjálfbært samfélag með aðgengi að vatni 29.120.000 Búrkína Fasó 2021
BBA//Fjeldco ehf. Skrif á reglugerðum v/ endurnýjanlegra orkugjafa 6.383.000 Kómoreyjar 2021
Björn Guðmundsson, Þróunarfræ - Örryggi í flugsamgöngum 2.000.000 Kongó 2021
GEG ehf. Notkun jarðvarma við kæligeymslur fyrir epli 14.560.000 Indland 2021
Geymd ehf. Nýjung hönnun og uppbygging. Snjallmannvirkja 2.000.000 Indland og Kenía 2021
Hananja ehf. Rephaiah verkefnið 26.875.000 Malaví 2021
Intellecon ehf. Bætt fiskveiðistjórnun í Viktoríuvatni 28.073.000 Úganda 2021
Kerecis Sáraumbúðir til bágstaddra í Kaíró 5.896.000 Egyptaland 2021
T16 ehf. Skapandi greinar fyrir betri atvinnutækifæri 2.000.000 Gínea Bissá 2021
Atmonia ehf. Sjálfbær framleiðsla á nituráburði 2.000.000 Kamerún 2020
Fisheries Technologies ehf. Carice, innleiðing á TFM upplýsingakerfi 14.360.000 St. Lúcía og Dóminíka 2020
Ocean Excellence ehf. Kælitækni fyrir smábátaútgerðir 2.000.000 Sierra Leóne 2020
Aurora Seafood ehf. Aukin hagsæld með nýtingu vannýttra auðlinda úr sjó 2.000.000 Gínea 2019
Creditinfo Group hf. Aðgengi lítilla fyrirtækja að fjármálaþjónustu 23.345.000 Fílabeinsströndin og Senegal 2019
Marel hf. Bætt gæði í vinnslu pangasius 7.000.000 Víetnam 2019
Thoregs Skyrgerð próteinvörur og mjólkurvinnsla 5.000.000 Indland 2019
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum