Hoppa yfir valmynd
Ísland í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna 2025-2027
UNHRC Genf. Copyright Ludovic Courtes

 

Aðild Íslands að mannréttindaráði SÞ

 

Ísland var kjörið til setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna til þriggja ára, 2025 til 2027, í kosningum sem fram fóru á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 9. október 2024.

Framboð íslands var stutt af öllum Norðurlöndunum en það er sameiginlegt markmið þeirra að eitt norrænt ríki eigi sæti í ráðinu hverju sinni. Þannig átti Finnland aðild að ráðinu 2022 til 2024 og Danmörk 2019 til 2021.

Ríkisstjórn íslands tók ákvörðun um framboð íslands til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna vorið 2020 í kjölfar samráðs við önnur Norðurlönd og sem liður í viðleitni íslenskra stjórnvalda að leggja sitt af mörkum til að efla stoðir mannréttinda á alþjóðavettvangi.

Markmið íslands með setu í mannréttindaráðinu er að standa vörð og efla samstöðu um mannréttindi á heimsvísu.

Önnur áherslumál eru kynjajafnrétti, málefni hinsegin fólks, réttindi barna, og tengsl umhverfismála og mannréttinda.  

 

 

No image selected

 

Áheitaskjal

Mannréttindaráðið hefur það hlutverk að efla og vernda mannréttindi, fjalla um mannréttindabrot og beina tilmælum til einstakra ríkja um úrbætur. Ísland leggur kapp á að efla stoðir og samstöðu um grundvallarmannréttindi og frelsi allra, jafnréttismál, réttindi hinsegin fólks, réttindi barna og umhverfismál.

 

Mynd: Framboðsbæklingur Íslands

 

Svipmyndir frá Íslandi

Áherslur Íslands á meðan setu í mannréttindaráði stendur

Ísland leggur áherslu á að leggja sitt að mörkum á meðan setu stendur í mannréttindaráðinu að efla stoðir og samstöðu um grundvallarmannréttindi um heim allan.

Sérstök áhersla verður einnig lögð á mannréttindi kvenna og stúlkna, réttindi barna, virðingu fyrir réttindum hinsegin fólks og áhrif áskorana í umhverfismálum á mannréttindi.

Þá verður hugað að samspili mannréttinda heima fyrir og á alþjóðavettvangi.

 

 

 

Framboðsbæklingur

Framboðið er hluti af langtíma stefnu íslenskra stjórnvalda að leggja sitt af mörkum til mannréttinda um heim allan.

Þá hefur áhersla verið lögð á samlegð og samfellu í áherslum stórra verkefna, þannig að styrkur Íslands og reynsla nýtist.

 

 

Frá fundi í mannréttindaráðinu

Ræður

Ísland leggur áherslu á að vera virkt aðildarríki, tekur virkan þátt í samningaviðræðum, flytur ræður og beitir sér fyrir áherslum Íslands þegar tækifæri gefast.

Fastanefnd Íslands við Genfarvatnið

Fastanefnd Íslands í Genf

Fastanefnd Íslands í Genf tekur þátt í vinnu mannréttindaráðsins fyrir hönd Íslands.
Frekari upplýsingar um starfsemi fastanefndar:

Húsnæði Sameinuðu þjóðanna í Genf

Ísland sem aðildarríki

Þetta er í annað sinn sem Ísland er kosið til setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna en Ísland tók síðast sæti í hálft kjörtímabil árið 2018.

 
No image selected

 

Um mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í Genf var sett á fót árið 2006 og tók við hlutverki mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna sem starfaði frá 1946. Hlutverk ráðsins er að efla og vernda mannréttindi í aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna, fjalla um mannréttindabrot, beina tilmælum til einstakra ríkja um úrbætur í mannréttindamálum og fjalla um einstök þematísk réttindamál. 

Alls sitja 47 ríki í mannréttindaráðinu hverju sinni, þar af tilheyra sjö hópi Vestur-Evrópu og annarra ríkja (WEOG), þrettán koma frá Afríku, þrettán úr hópi Asíu- og Kyrrahafsríkja, átta úr hópi ríkja Rómönsku Ameríku og Karíbahafseyja og loks sex úr hópi Austur-Evrópuríkja.

Mannréttindaráðið fundar að jafnaði í þremur reglubundnum fundalotum á ári sem standa yfir í nokkrar vikur í senn. Auk þess fjallar ráðið ástand mannréttinda og framfylgd alþjóðlegra mannréttindaskuldbindinga í einstökum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna með svokallaðri allsherjarúttekt (Universal Periodic Review) sem fer fram í þremur lotum á ári hverju. 

Á vegum mannréttindaráðsins starfa einnig sérstakir skýrslugjafar og vinnuhópar sem heimsækja ríki, skoða stöðu mannréttinda og veita ríkjum tilmæli í kjölfarið. 

Skrifstofa mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (Office of the High Commissioner for Human Rights, OHCHR) skipuleggur fundi mannréttindaráðsins og annast framkvæmd þeirra, jafnframt því sem hún sinnir vettvangsvinnu. Ísland styður starf skrifstofu mannréttindafulltrúans með fjárframlögum samkvæmt gildandi rammasamningi.

 

 

HAFA SAMBAND

Fastanefnd Íslands í Genf | Avenue Blanc 49, 6th floor, CH-1211 Geneva | S: +41 (0)22 716 17 00

 @IcelandinGeneva  |  #ICELANDHRC  |  [email protected]  | government.is/hrc

 

 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta