EES samningurinn - vinnumál
Reglur Evrópusambandsins á sviði vinnumála sem orðið hafa hluti af EES-samningnum hafa leitt til breytinga á löggjöf og reglum stjórnvalda og til samninga aðila vinnumarkaðarins. Tvær tilskipanir Evrópusambandsins hafa verið gildisteknar hér á landi með kjarasamningum samtaka aðila á vinnumarkaði. Annars vegar er um að ræða tilskipun nr. 93/104/EB um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma (sjá Auglýsingu nr. 285/1997 í B-deild Stjórnartíðinda) og hins vegar tilskipun nr. 91/533/EBE frá 14. október 1991 um skyldu vinnuveitanda að skýra launþegum frá samningsskilmálum eða ráðningarfyrirkomulagi (Auglýsing nr. 503/1997 í B-deild Stjórnartíðinda).
Lagabálkar sem stafa einkum af skuldbindingum samkvæmt EES-samningnum:
- Lög um hópuppsagnir nr. 63/2000.
- Lög um evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum nr. 61/1999.
- Lög um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum nr. 72/2002.
- Lög um réttarstöðu starfsmanna sem starfa tímabundið á Íslandi á vegum erlendra fyrirtækja nr. 54/2001.
- Lög um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins nr. 47/1993.
Þá hafa EES-reglur verið teknar upp í gildandi löggjöf, sbr. einkum lög nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum hvað varðar vinnu barna og ungmenna og vinnutíma.
Viðaukar við EES samninginn:
Finna má texta gerða Evrópusambandsins á sviði vinnuréttar og vinnuverndar í XVIII. viðauka EES-samningsins.
- XVIII. viðauki - ÖRYGGI OG HOLLUSTUHÆTTIR Á VINNUSTÖÐUM, VINNURÉTTUR OG JAFNRÉTTI KYNJANNA
- EES.IS: Upplýsingavefur um EES-samninginn og annað Evrópusamstarf
Sjá einnig:
Yfirlit um lög
Yfirlit um lög er varða vinnurétt er að finna á vef Alþingis
Stofnanir
Áhugavert
Alþjóðlegt samstarf á sviði vinnumála
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.