Hoppa yfir valmynd

Ráðstefna um framtíðarskipan vinnumála og breytingar á vinnumarkaði

Ráðstefna um framtíðarskipan vinnumála og breytingar á vinnumarkaði (Future of Work) var haldin í Hörpu dagana 4. og 5. apríl 2019. Ráðstefnan, sem fór fram á ensku, er haldin í samvinnu við Norrænu ráðherranefndina og Alþjóðavinnumálastofnunina (International Labour Organization – ILO) í tilefni af því að öld er liðin frá því að stofnunin tók til starfa.

Ráðstefnan var sú síðasta af fjórum sem haldnar hafa verið árlega síðan 2016 í aðildarríkjum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar í tilefni aldarafmælisins. Þar verða kynntar niðurstöður nefndar á vegum stofnunarinnar sem í eiga sæti þjóðarleiðtogar og sérfræðingar á sviði félags- og vinnumála. Þær byggja á niðurstöðum úr skýrslum frá fyrri afmælisráðstefnum. Kynnt var áfangaskýrsla úr rannsókn Norrænu ráðherranefndarinnar um framtíð vinnumála  og breytingar á vinnumarkaði sem unnin er af rannsóknarstofnuninni Fafo í Noregi. Þá var lögð sérstök áhersla á umræður um stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Guy Ryder, forstjóri Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, flutti erindi og var nokkrum alþjóðasamtökum boðið að senda fulltrúa til að taka þátt, m.a. Evrópusambandinu, OECD o.fl.

2019 var aldarafmælis Alþjóðavinnumálastofnunarinnar minnst með margvíslegum hætti en hún hóf starfsemi í framhaldi af friðarsamningunum sem bundu enda á fyrri heimsstyrjöldina árið 1919. Í tilefni afmælisins hleypti stofnunin auk þess af stokkunum verkefnum sem beindust að eftirfarandi þáttum:

  • þróun atvinnulífs og samfélags
  • atvinnusköpun - einnig í þágu þeirra sem standa höllum fæti á vinnumarkaði
  • breytingum á skipulagi vinnumála vegna nýrrar tækni
  • samskiptum atvinnurekenda og launafólks, réttindum og skyldum, formi á reglusetningu o.fl. á sviði félags- og vinnumála.

Því var beint til ríkisstjórna aðildarríkjanna að efna til umræðna um framangreinda þætti sem gætu orðið innlegg í stefnumótun fyrir starfsemi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar í nánustu framtíð. Ríkisstjórnir Norðurlandanna í samvinnu við Skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar, Alþjóðavinnumálastofnunina og samtök aðila vinnumarkaðarins stofnuðu til samstarfsverkefnis af þessu tilefni. Haustið 2017 hófst rannsóknarverkefni sem beinist að breytingum á skipulagi vinnumála og áhrifum þess á norræna vinnumarkaðsmódelið. Enn fremur er sjónum beint að því með hvaða hætti hægt er að hafa áhrif á framvinduna þannig að sá samfélagslegi árangur sem Norðurlöndin hafa náð á sviði félags- og vinnumála glatist ekki.

Frá árinu 2016 hafa eins og að framan greinir verið haldnar árlegar ráðstefnur um framtíð vinnumála sem fylgt hafa formennsku í norrænu ráðherranefndinni. Þar hafa verið tekin fyrir afmörkuð verkefni á framangreindum málefnasviðum. Fyrsta ráðstefnan var haldin í Finnlandi árið 2016, önnur í Noregi árið 2017 og sú þriðja í Svíþjóð vorið 2018. Lokaráðstefnan var í Hörpu. 

Síðast uppfært: 10.6.2024
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum