Hoppa yfir valmynd

Elemennt - gervigreindaráskorun

Gervigreindaráskorunin Elemennt er opið vefnámskeið sem ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að fjárfesta í til að styrkja íslensku þjóðina og auka samkeppnishæfni hennar. Námskeiðið er hluti af aðgerðaáætlun fyrir Ísland í fjórðu iðnbyltingunni, með það að leiðarljósi að leggja rækt við þekkingu, uppbyggingu hennar og flæði um allt samfélagið til að sporna gegn skiptingu í hópa þeirra sem eiga eða eiga ekki, kunna eða kunna ekki, skilja eða skilja ekki.

Markmið verkefnisins eru:

  • Að gera þekkingu á gervigreind aðgengilega fyrir alla svo fólk finni kraft og tækifæri í nýrri tækni, fremur en ógn
  • Að valdefla íslensku þjóðina og auka samkeppnishæfni hennar
  • Að styrkja starfsmöguleika og starfshæfni Íslendinga

Um er að ræða 30 klukkustunda netnámskeið í 6 hlutum sem einstaklingar geta tekið þegar þeim hentar, hvort sem er í tölvu eða síma, en það er hannað til að vera aðgengilegt flestum, óháð aldri, starfsreynslu eða öðru. Námskeiðið hefur hlotið fjölda verðlauna (meðal annars frá MIT – Massachusetts Institute of Technology) og er nefnt fyrst í flokki vefáfanga um tölvunarfræði, á undan áföngum þekktra menntastofnana á borð við Stanford, Harvard og MIT. Við skorum á jafnt fyrirtæki og einstaklinga hvaðanæva úr þjóðfélaginu til að skrá sig á námskeiðið, öðlast nýja þekkingu og taka á móti framtíðinni með opnum huga.

 

Kynningarmyndband um Elemennt: 

 

Nánari upplýsingar og skráning

Síðast uppfært: 8.2.2023 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta