Framtíðarnefnd forsætisráðherra
Forsætisráðherra skipaði framtíðarnefnd um áskoranir og tækifæri vegna tæknibreytinga 12. júní 2018. Skipan nefndarinnar var í samræmi við fyrirætlan ríkisstjórnarinnar en kveðið er á um skipan slíkrar nefndar í stjórnarsáttmálanum.
Framtíðarnefnd forsætisráðherra hefur það hlutverk að:
- Fjalla um áskoranir og tækifæri vegna tæknibreytinga, áhrif tækniframfara og hina svokölluðu fjórðu iðnbyltingu.
- Fjalla um þróun þeirra meginstrauma sem koma til með að hafa mótandi áhrif á samfélagið til framtíðar einkum með hliðsjón af þróun umhverfismála og lýðfræðilegum þáttum.
- Stuðla að upplýstri umræðu um tækifæri og ógnanir framtíðarinnar og verði virkur umræðuvettvangur um framtíðarfræði.
Hlutverk og helstu verkefni
Fréttir og tilkynningar
Skýrslur og greinargerðir
- Skýrsla nefndarinnar: Þróun atvinnulífs, umhverfis, byggðar og lýðfræðilegra þátta
- Summary of the Futures Committee report on Icelandic Society 2035-2040 (samantekt á ensku úr skýrslu framtíðarnefndar)
- Greinargerð nefndar 2018
Fulltrúar í framtíðarnefnd
- Smári McCarthy, alþingismaður, formaður
- Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, varaformaður
- Andrés Ingi Jónsson, alþingismaður
- Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður
- Gunnar Bragi Sveinsson, alþingismaður
- Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður
- Inga Sæland, alþingismaður
- Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður
- Logi Einarsson, alþingismaður
- Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður
- Þorsteinn Víglundsson, alþingismaður
Starfsmenn
- Pétur Berg Matthíasson, fulltrúi forsætisráðuneytisins
- Unnur Brá Konráðsdóttir, fulltrúi forsætisráðuneytisins
Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.