Hoppa yfir valmynd
28. október 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um styrki til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins

Mynd: Samsett MVF - mynd

Menningar- og viðskiptaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins og er umsóknarfrestur til miðnættis mánudaginn 18. nóvember 2024.

Markmið með styrkveitingum til einkarekinna staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins er að efla starfsemi þeirra enda gegni þeir mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðja með þeim hætti við lýðræðisþátttöku og menningarstarf. (3. gr. reglna nr. 1146/2024 um styrkveitingar til staðbundinna fjölmiðla).

Til úthlutunar árið 2024 eru 12,5 m.kr.: 10 m.kr. frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu og 2,5 m.kr. frá innviðaráðuneytinu vegna aðgerðar C.07 í byggðaáætlun; Efling fjölmiðlunar í héraði.

Umsækjendum er bent á að kynna sér ákvæði reglna nr. 1146/2024 um styrkveitingar til staðbundinna fjölmiðla.

Sækja um 

Til að sækja um þarf að fylla út umsóknareyðublað sem nálgast má hér. Umsóknina þarf að prenta út til undirritunar, skanna og senda ásamt öllum umbeðnum fylgiskjölum á netfang menningar- og viðskiptaráðuneytis, [email protected], fyrir miðnætti 18. nóvember 2024. Ef spurningar vakna um hvernig eigi að fylla umsóknina út er hægt að senda fyrirspurn á framangreint netfang.

 

Til glöggvunar má nefna að höfuðborgarsvæðið nær yfir sveitarfélögin Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ, Seltjarnarnesbæ og Mosfellsbæ.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta