Hoppa yfir valmynd
20. nóvember 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Hagsmunamat fyrir börn í allri stefnumótun

Í dag er dagur mannréttinda barna og markar dagurinn 35 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur gefið út leiðarvísi um hagsmunamat út frá réttindum barna í allri stefnumótun stjórnvalda. Markmiðið er að stjórnvöld hugi markvisst að því hvaða áhrif ákvarðanir þeirra hafa á börn og réttindi þeirra og hvort og þá með hvaða hætti er nauðsynlegt að bregðast við þeim áhrifum.

Hagsmunamatið er hluti af innleiðingu barnasáttmálans hérlendis samkvæmt þingsályktun um barnvænt Ísland. Í þingsályktuninni kemur fram að hagsmunamat út frá réttindum barna skuli vera hluti af skyldubundnu ferli við undirbúning lagafrumvarpa, stefnumótandi ákvarðana og ákvarðana um réttindi einstakra barna.

Vinna hefur staðið yfir í mennta- og barnamálaráðuneytinu í samvinnu við umboðsmann barna við að útfæra hagsmunamatið sem leiðarvísi og eyðublað. Lögð hefur verið áhersla á að leiðarvísirinn sé aðgengilegur og einfaldur í notkun. Hann verði innleiddur í öllum ráðuneytum þannig að frumvörp, reglugerðir, stefnur og aðrar stefnumótandi ákvarðanir sem stjórnvöld taka fari ávallt í gegnum barnvænt hagsmunamat þegar ákvarðanir hafa áhrif á börn.

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur samið við umboðsmann barna um að styðja við innleiðingu á hagsmunamatinu hjá Stjórnarráðinu og gefa út fræðslu- og kynningarefni um framkvæmd matsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta