Hoppa yfir valmynd
6. desember 2024 Innviðaráðuneytið

Skýrsla birt um einn feril húsnæðisuppbyggingar

Starfshópur innviðaráðherra um einn feril húsnæðisuppbyggingar hefur lokið störfum og skilað skýrslu með tillögum að umbótum varðandi skilvirkari húsnæðisuppbyggingu.

Meðal umbóta sem starfshópurinn leggur til er að: 

  • gæta að góðu samræmi milli svæðis-, aðalskipulags og húsnæðisáætlunar hvers sveitarfélags svo tryggt sé að skipulagsvinna hefjist tímanlega sem og hönnun og úthlutun lóða til að mæta íbúðaþörf í takt við áætlaða fólksfjölgun. 
  • horfa til þess að samræma reglur sveitarfélaga um gjaldtöku, úthlutun lóða, tímasetningu gjaldtöku, innviðasamninga o.fl. (samræming á reglum ekki gjaldi). 
  • horfa til þess að fara í að útfæra minniháttar breytingar á skipulagslögum sem fela í sér styttingu á málsmeðferðartíma. 
  • skoða ávinning þess að sameina aðgengi að gögnum í eina miðlæga vefgátt, s.s. á island.is, þar sem hægt væri að nálgast á einum stað allar aðgengilegar upplýsingar sem varða húsnæðisuppbyggingu, s.s. skipulag, lóðir, byggingarleyfi, byggingarhæfi lóða, skráningu fasteigna o.fl.
  • rýna hvort að sveitarfélög hafi næga faglega innviði til að sinna hlutverki sínu er kemur að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, t.d. varðandi gerð og yfirferð skipulags ásamt yfirferð gagna er varða byggingarleyfi.

Vinna hópsins var hluti af aðgerðaáætlun rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða 2023-2032 sem undirritaður var 12. júlí 2022. Í rammasamningnum var lögð fram sameiginleg sýn og stefna í húsnæðismálum með það að markmiði að auka framboð nýrra íbúða og stuðla að auknum stöðugleika og jafnvægi á húsnæðismarkaði. Einnig er verkefnið hluti af aðgerðaáætlunum húsnæðisstefnu og landsskipulagsstefnu.

Starfshópurinn var skipaður fulltrúum frá innviðaráðuneytinu, Skipulagsstofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, og Samtökum iðnaðarins. Verkefni hópsins fólst í að taka saman og fara yfir niðurstöður þeirrar vinnu sem þegar hefur farið fram undanfarin ár og varðar greiningu á ferlum skipulags- og byggingarmála tengdum uppbyggingu húsnæðis.

Tillögur starfshópsins munu nýtast inn í áframhaldandi vinnu aðgerðaáætlana húsnæðisstefnu og landsskipulagsstefnu. 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta