Hoppa yfir valmynd

Starfshópur um stefnu fyrir virka ferðamáta og smáfarartæki

Innviðaráðuneytið

Innviðaráðherra hefur skipað starfshóp um stefnu fyrir virka ferðamáta og smáfarartæki. 

Starfshópurinn skal greina stöðu og þróun í göngu, hjólreiðum og umferð smáfarartækja. Mótuð verði stefna og aðgerðaáætlun fyrir göngu, hjólreiðar og smáfarartæki sem stuðlað geti að bættu umhverfi fyrir þá ferðamáta. Starfshópurinn skal greina stöðu virkra ferðamáta og smáfarartækja á Íslandi ásamt valkostum sem til staðar eru til að efla ferðamátana. Í þeirri vinnu er mikilvægt að starfshópurinn eigi samráð við helstu hagsmunaaðila. Byggt á niðurstöðum greininga verði mótuð tillaga að stefnu og forgangsraðaðri aðgerðaáætlun til næstu ára, ásamt mælanlegum markmiðum.

 

Starfshópurinn skal skila niðurstöðum eigi síðar en 31. janúar 2025.

 

Starfshópurinn er skipaður eftirtöldum fulltrúum:

  • Sigrún Helga Lund, án tilnefningar,
  • Gunnar Geir Gunnarsson, tilnefndur af Samgöngustofu,
  • Dóra Björt Guðjónsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
  • Sesselja Traustadóttir, tilnefnd af Landssamtökum hjólreiðamanna,
  • Katrín Halldórsdóttir, tilnefnd af Vegagerðinni.

Hrefna Hallgrímsdóttir, starfsmaður innviðaráðuneytisins mun starfa með hópnum.

Tímabundnar nefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum