Reikningsskila- og upplýsinganefnd
Meginhlutverk reikningsskila- og upplýsinganefndar, sem skipuð er skv. 74. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, er að stuðla að samræmingu í reikningsskilum sveitarfélaga og öðrum fjárhagslegum ráðstöfunum þeirra. Þá sinnir hún öðrum verkefnum sem ráðherra felur henni á þessu sviði. Reikningsskila- og upplýsinganefnd getur eftir því sem tilefni er til gefið út nánari leiðbeiningar og álit um bókhald, fjárhagsáætlanir og reikningsskil sveitarfélaga en gert er í reglum um bókhald og reikningsskil.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipar fimm manna reikningsskila- og upplýsinganefnd til fimm ára í senn. Nefndarmenn skulu hafa þekkingu á reikningsskilum sveitarfélaga. Tvo skal skipa samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga, einn samkvæmt tillögu Hagstofu Íslands og tvo án tilnefningar. Skal annar þeirra vera löggiltur endurskoðandi. Fimm varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar formann nefndarinnar.
Reikningsskila- og upplýsinganefnd er þannig skipuð:
- Ágúst Kristinsson, löggiltur endurskoðandi og formaður nefndarinnar, tilnefndur af ráðherra
- Þórey Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri, tilnefnd af ráðherra
- Gísli H. Guðmundsson, borgarbókari, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Guðrún Torfhildur Gísladóttir, aðalbókari, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Guðjón Guðmundsson, sérfræðingur, tilnefndur af Hagstofu Íslands
Varamenn:
- Stefán Kalmansson og Jóna Árný Þórðardóttir, tilnefnd af ráðherra
- Sigurrós Ásta Sigurðardóttir og Jóhannes Á. Jóhannesson, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Anna Jónsdóttir, sérfræðingur, tilnefnd af Hagstofu Íslands
Skipunartími nefndarinnar er frá og með 1. júlí 2021 til og með 30. júní 2026 eða til fimm ára.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.