Ofbeldi gegn börnum - Fræðsluefni
Þverfaglegt samstarf ráðuneytanna helgaðist af því hversu víðfemt efni sáttmálans er og skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta. Samstarfið var einnig til þess fallið að koma í veg fyrir tvíverknað með auknu upplýsingaflæði og samráði um málaflokka sem snerta samfélagslega vernd barna.
Fræðsla og forvarnir beindust fyrst og fremst að börnum, fólki sem vinnur með börnum, réttarvörslukerfinu sem og almenningi. Í tengslum við verkefnið var búið til fræðslu- og upplýsingaefni af ýmsu tagi og er það aðgengilegt hér að neðan.
Leiðin áfram
Leiðin áfram eru tvö myndbönd ætluð 14 ára og yngri og 15 ára og eldri. Þar er farið í gegnum ferlið innan réttarvörslukerfisins eftir að kynferðisbrot hefur átt sér stað.
Stattu með þér!
Stattu með þér! er stuttmynd ætluð miðstigi grunnskóla. Myndinni er ætlað að spyrna gegn kynferðisofbeldi og klámvæðingu með sjálfsvirðingu og jákvæðni að leiðarljósi.
Fáðu já!
Fáðu já! er stuttmynd sem skýrir mörkin á milli kynlífs og ofbeldis, vegur upp á móti áhrifum klámvæðingar og brýtur ranghugmyndir á bak aftur. Myndin er ætluð framhaldsskólastigi.
Réttarkerfið
Segðu frá
Hlutverk skóla
Vitundarvakning og Námsgagna-stofnun Reykjavíkur hafa gefið út handbókina Ofbeldi gegn börnum – hlutverk skóla.
Krakkarnir í hverfinu
Á hverju ári fá allir aðrir bekkir í grunnskólum landsins sýningu á brúðuleikritinu Krakkarnir í hverfinu sem er ætlað að auðvelda börnum að segja frá ofbeldi sem þau verða fyrir. Boðskapur sýningarinnar er: Þú færð hjálp ef þú segir frá.
Sjá einnig:
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.