Hoppa yfir valmynd
01.07.2024 Innviðaráðuneytið

Endurskoðuð áætlun framlaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Framlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts munu nema rúmlega 7,3 ma.kr. á árinu 2024. Innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þess efnis sbr. reglugerð nr. 80/2001 með síðari breytingum.

Um 60% af áætlun um úthlutun framlaga ársins komu til greiðslu mánuðina febrúar til júní eða samtals um 4,4 ma.kr.  Áætlað uppgjör framlaganna, sem nemur um 2,9 ma.kr. fer fram með þremur jöfnum greiðslum mánuðina júlí, ágúst og september, 978 m.kr. í hvert sinn.

Útreikningur framlaganna byggist á upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts í sveitarfélögum 31. desember 2023, sem gilda fyrir árið 2024. Við útreikning framlaganna er jafnframt tekið mið af álagningarprósentum fasteignaskatts í sveitarfélögum á árinu 2024.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta