Um réttarvörslugátt
Réttarvörslugátt er samheiti yfir mörg verkefni sem miða að því að gera réttarvörslukerfið stafrænt.
Kynning á verkefninu á Ský-fundi 4. júní 2019.
Samstarfsaðilar um réttarvörslugátt eru: Ríkislögreglustjóri, lögregluembætti, Héraðssaksóknari, Ríkissaksóknari, Dómstólasýslan, héraðsdómstólar, Landsréttur, Hæstiréttur og Fangelsismálastofnun.
Dómsmálaráðuneytið er eigandi verkefnisins og er það unnið í samstarfi við verkefnastofu um stafrænt Ísland í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Stjórnskipulag verkefnisins:
- Eigandi: Dómsmálaráðuneytið
- Stýrihópur: Fulltrúar dómsmálaráðuneytis, dómstóla, ríkislögreglustjóra, ákæruvalds og fullnustu
- Verkefnisstjórn: Verkefnisstjóri, fulltrúar dómsmálaráðuneytis og verkefnastofu um stafrænt Ísland
- Vinnuhópar um einstök verkefni eftir þörfum
Réttarvörslugátt
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.